Fréttir

Körfubolti | 12. febrúar 2003

KEF-KARLAR lenda í toppslag í Grindavík á föstudaginn

Strákarnir eru í þriðja sætinu í Intersport-deildinni á eftir KR og Grindavík. Stefnan hefur að sjálfsögðu verið sett á efsta sætið en þó má telja stöðu Grindvíkinga afar góða, en þeir hafa fjögurra stiga forskot á okkar menn þegar aðeins sex umferðum er ólokið. Keflvík má helst ekki tapa leik það sem eftir lifir móti ef efsta sætið á að nást, en úr því sem komið er má telja það gott ef liðinu tekst að ná öðru sætinu af KR-ingum. Annars getur allt gerst, eins og dæmin sanna.

Grindavík hefur reynst okkur erfitt í vetur. Fyrst unnu þeir okkur í æfingamótum vetrarins, Valsmóti og Reykjanesmóti, og síðan lögðu þeir okkur í fyrri umferð Intersportdeildarinnar eftir góðan endasprett. Úrslitaleikurinn í Kjörískeppninni var síðan svaka spennutryllir þar sem allt útlit var fyrir enn einn Grindavíkursigur, allt þar til Damon skellti niður þristi á lokasekúndu leiksins, eins og mönnum er eflaust enn í fersku minni.

Leikurinn í Röstinni á föstudaginn verður sannkallaður toppslagur. Ef Grindavík vinnur er úti um möguleika okkar á efsta sætinu, en með sigri opnast ýmsir möguleikar. Grindavík hefur, líkt og Keflavík, styrkt lið sitt að undanförnu. Tveir Bosmann leikmenn hafa bæst í hópinn, fyrst hinn hávaxni Bosko og nú síðast annar Júgóslavi sem á að vera hörku spilari. En þeir hafa einnig lent í meiðslum og þeir Pétur Guðmundsson og Bjarni Magnússon eru fjarri góðu gamni.

Leikur Grindjána byggist mikið á öflugu þríeyki þeirra Helga Jónasar, Páls Axels og Darryl Lewis. Þessir drengir eru eitraðir og munu gera sitt besta til að halda efsta sætinu í Grindavík.

Okkar menn eru á sigurbraut um þessar mundir og vilja loks ná almennilegum leik gegn Grindavík. Ed hefur styrkt liðið verulega og gaman verður að sjá hvort það dugi gegn Gindavík. Það er ljóst að við fáum algeran toppleik á föstudaginn!