Fréttir

Körfubolti | 18. janúar 2003

KEF-KARLAR líka komnir í Bikarúrslit eftir 14 stiga sigur á ÍR

ÍR-ingar létu hrakspár sem vind um eyru þjóta og mættu ljóngrimmir til Keflavíkur í dag. Þeir réðu lögum og lofum undir körfunum með mikill baráttu og fengu ansi oft "auka"-tækifæri til að skora enda hirtu þeir mýmörg sóknarfráköst, sérstaklega í fyrri hálfleik. En þegar á leikinn leið stöppuðu Keflvíkingar í sig stálinu og hertu vörnina. Hægt og rólega kom getumunur liðanna í ljós og Keflavík sigldi framúr í síðasta leikhluta og vann nokkuð öruggan 14 stiga sigur, 95-81.

Leikurinn byrjaði með látum og skiptust liðin á að skora og gera mistök. Bæði beittu þau óspart pressu- og svæðisvörnum og hafði það sín áhrif. Keflvíkingar voru hins vegar ekki almennilega vaknaðir þegar leikurinn hófst og voru ÍR-ingar mun baráttuglaðari. Gaui Skúla setti þó niður þrjá þrista í fyrri hálfleik og Damon og Sverrir Þór áttu góða spretti. En varnarleikurinn og fráköstin voru ekki mætt á svæðið.

Staðan eftir fyrsta leikhluta var jöfn, 22-22, en ÍR, með Eugene Christopher í fararbroddi náði 8 stiga forskoti í öðrum leikhluta 35-43 og Keflvíkingar ennþá hálfsofandi. Þá tók Damon hressilega við sér og Gaui smellti einum þristi úr horninu á síðustu sekúndi. Forskotið hafði minnkað í eitt stig, 44-45, og fyrri hálfleik lauk.

 

Í seinni hálfleik virtust Keflvíkingar einbeittari og Ed Saunders, sem hafði verið slakur í fyrri hálfleik, fór að rífa niður fráköst, en alls hirti hann 15 slík í leiknum. Með því að setja fyrir helsta lekann í vörninni varð sóknarleikur ÍR-inga tilviljanakenndari og okkar menn náðu nokkrum góðum hraðupphlaupum. Enda náði Keflavík strax yfirhöndinni og komst fljótt 10 stig yfir.

En ÍR-ingar börðust áfram og jöfnuðu í stöðunni 60-60 og mikil spenna hljóp í áhorfendur sem voru vel með á nótunum, sérstaklega Stuðningsmannasveitin Ógurlega sem barði drumbur og söng af miklum krafti allan leikinn. Í þessari stöðu fóru Keflvíkingar að leika af meiri skynsemi og lengdu sóknir sínar, þegar þeir höfðu ekki hraðupphlaup. Menn fóru að sækja meira að körfunni og ÍR-ingar réðu ekki við sóknarleik Keflavíkur sem var mjög hreyfanlegur.

Eins og oft áður fór Damon fyrir sínum mönnum og svo kom Magnús Gunnarsson heldur betur með góðan leik í fjórða leikhluta. Hann skellti niður fjórum þristum og átti stóran þátt í því að ná aftur upp forskotinu. Síðustu mínúturnar var leikurinn í öruggum höndum okkar manna og örvæntingafullar tilraunir ÍR-inga báru ekki árangur. Sverrir Þór barðist gríðarvel í leiknum og eins var Gunnar Einarsson sterkur í vörninni. Fjórði leikhlutinn, líkt og í tveimur síðustu leikjum, var sá besti hjá okkar mönnum. Þeir léku af skynsemi og létu andstæðingana um að gera mistökin.

ÍR-ingar eiga hrós skilið fyrir góða baráttu. Liðið hefur á að skipa mörgum efnilegum og hávöxnum strákum sem gefa allt sitt í leikinn. Einnig eiga ÍR-ingar hrós skilið fyrir að mæta með rútu fulla af háværum stuðningsmönnum, sem studdu vel við sína menn allan leikinn.  

Nú er einu af takmörkum vetrarins náð, því bæði lið Keflavíkur, karlar og konur, hafa tryggt sér sæti í sjálfum Bikarúrslitaleiknum sem verður laugardaginn 8. febrúar næstkomandi. Bæjarbúar þurfa nú að taka höndum saman og byggja upp góða stemmingu fyrir þá leiki, enda tveir titlar í boði sama daginn. Stúlkurnar munu leika gegn ÍS, en andstæðingar strákanna verða annað hvort Snæfell eða Hamar, það kemur í ljós á morgun.

ÁFRAM KEFLAVÍK!