KEF-KARLAR mæta ÍR á heimavelli í kvöld
Þriðji síðasti leikur Keflavíkur í deildarkeppni Intersport-deildar verður háður í kvöld, fimmtudag, kl. 19.15. ÍR-ingar koma í heimsókn og má gera ráð fyrir fjörugum leik ef tekið er mið af tveimur fyrri viðureignum félaganna á yfirstandandi leiktíð.
Fyrsta leiknum, í fyrri umferð deildarinnar, lauk með sigri ÍR-inga í Seljaskóla. Keflavík lék skelfilega í þeim leik og voru menn afar svekktir með tapið.
Næsti leikur hafði síðan gríðarmikla þýðingu fyrir bæði liðin, enda undanúrslitin í Bikarkeppni KKÍ. Sá leikur hófst með miklum látum ÍR-inga sem bökuðu Keflvíkinga í fráköstunum. En hægt og rólega tók Keflavík völdin á vellinum og sigraði í skemmtilegum leik.
Nú mætast liðin í þriðja sinn og aftur er mikið í húfi, lokasæti í Intersport-deildinni. Keflavík berst um 2. sætið og verður að sigra til að halda því, en ÍR er í baráttunni um 5.-8. sætið, en hefur nokkuð örugglega tryggt sér þátttöku í úrslitakeppninni.
Þá er bara að vona að leikurinn verði skemmtilegur og að áhorfendur fjölmenni - ÁFRAM KEFLAVÍK!