Fréttir

Körfubolti | 28. febrúar 2003

KEF-KARLAR tóku létta æfingu gegn Kanalausum ÍR-ingum í gær, 114-88

Kani þeirra ÍR-inga meiddist á læri í síðasta leik og hafði ekki náð fullum bata fyrir leikinn gegn Keflavík í gær og lék ekki með. Hvort sem það var því að kenna eða þá að "Reykjanesbrautarveikin” hafi lagst á liðið, skal ekki sagt, en greinilegt var að gestirnir mættu til leiks án alls baráttu- og sigurvilja.

Keflvíkingar voru hins vegar staðráðnir í að halda öðru sætinu í deildinni og mættu fókuseraðir í leikinn. Enda var gríðarlegur munur á liðunum frá upphafi til enda, og einungis flott tilþrif heimamanna héldu áhorfendum við efnið.

Nokkrar glæsilegar troðslur litu dagsins ljós og má sérstaklega nefna tvær. Sú fyrri gerðist með þeim hætti að Damon var með boltann og sendi hann fast í gólfið og svo skoppaði hann hátt upp fyrir hringinn þar sem Ed var mættur og hamraði honum niður. Damon og Eddi sýndu fleiri slík háloftatilþrif í leiknum, en þó voru það Arnar Freyr og Jonni sem áttu tilþrif dagsins. Arnar Freyr keyrði inn í vörn ÍR og á sama tíma læddist Jonni bak við vörnina. Síðan skóflaði Arnar boltanum upp og þar kom Jonni aðsvífandi á fullri ferð, greip boltann í loftinu og tróð viðstöðulaust. Sérlega glæsilegt hjá strákunum.

Einnig bauð Gaui Skúla upp á 3ja stiga sýningu eins og honum er einum lagið. Kallinn sá er engum líkur þegar hann hitnar, og í gær setti hann niður 8 þrista úr 13 tilraunum, suma hverja með varnarmenn “í andlitinu” eins og sagt er. Damon var líka sprækur og skoraði að vild.

Fátt annað er í raun um leikinn að segja, munurinn á liðunum var augljós strax í byrjun og sigurinn aldrei í hættu. Gera má ráð fyrir að næsti leikur verði erfiðari, því þá heldur liðið í Smárann, en oftar en ekki hafa útileikir gegn Breiðabliki verið slakir af okkar hálfu. Núna eru Blikarnir í svaka baráttu um sæti í úrslitunum og má reikna með þeim í baráttuham. Þess vegna er mikilvægt að okkar menn komi sér strax í gírinn fyrir þann leik