KEF-KONUR: 35 stiga sigur gegn Haukum, 89-54 – öruggt frá fyrstu mínútu
Það var greinilegt strax í upphafi leiksins að Keflavíkurmeyjar ætluðu ekki að leika tvo slaka leiki í röð. Tapið gegn Njarðvík um daginn kallaði fram rétt viðbrögð og mættu stelpurnar grimmar til leiks. Í stuttu máli sagt þá tóku þær völdin á leikvellinum strax í byrjun og létu þau aldrei af hendi.
Munurinn varð strax mikill og í hálfleik skildu 21 stig liðin í stöðunni 41-20. Seinni hálfleikur bauð upp á meira af því sama og okkar stúlkur voru einráðar á vellinum. Þær náðu grimmdinni aftur í vörnina og þá var ekki að sökum að spyrja. Haukastúlkur voru ráðvilltar og komust lítt áleiðis, enda leikmennirnir ungir og nýkomnir í efstu deild. Haukarnir höfðu skömmu áður sagt upp samningi sínum við erlenda leikmanninn og tóku þá ákvörðun að láta stelpurnar reyna að spreyta sig í deildinni. Fróðlegt verður að sjá hvort þeim takist að halda sér, því baráttan um að forðast fall er hörð.
Í Keflavíkurliðinu bar einna mest á Erlu Þorsteins og Birnu Valgarðs. Erla var geysisterk í fráköstunum, tók alls 13, og Birna sótti grimmt að körfum andstæðinganna og uppskar 26 stig. Einnig átti Svava einn sinn besta leik í langan tíma, en hún setti t.d. niður fimm þrista úr jafnmörgum tilraunum. Annars lék liðið prýðilega sem heild og uppskar samkvæmt því.
Nú er pressan sem fylgir sigurgöngunni farin og stúlkurnar geta einbeitt sér að hverjum leik fyrir sig án þess að hafa áhyggjur af því að sigurgöngunni fari að ljúka. Brátt skal haldið í höllina og þar mætum við sterku liði Stúdína sem hafa bætt sig verulega upp á síðkastið.