Fréttir

Körfubolti | 12. mars 2003

KEF-KONUR: Deildarmeistararnir unnu síðasta deildarleikinn gegn KR, 73-71

Síðasti deildarleikur vetrarins í kvennaboltanum gaf góð fyrirheit um úrslitakeppnina, þar sem margir telja líklegt að Keflavík og KR gætu leikið stórt hlutverk þar. Keflavík leiddi mest allan leikinn og hafði forystu í hálfleik. En í síðasta leikhluta jöfnuðu KR ingar og leikurinn var æsispennandi. En Keflavík var sterkari á endasprettinum og tryggði sér 2ja stiga sigur. Að leik loknum afhenti Ólafur Rafnsson, formaður KKÍ, fyrirliða Keflvíkinga, Kristinu Blöndal, Deildarbikarinn.

Lið Keflavíkur var jafnt í leiknum og skoruðu þær Birna, Erla, Anna María og Kristín Blöndal allar 12 stig eða meira. Hjá KR var Jessica Stomski yfirburðamanneskja og skoraði 28 stig. Gaman var að sjá Keflavíkurkonur vinna jafnan leik eftir að hafa tapað niður forskoti, því þær hafa frekar mátt venjast stórum sigrum í vetur. En nú er úrslitakeppnin framundan og von á jafnari leikjum.

Segja má að það hafi verið við hæfi að Keflavík endaði deildarkeppnina með sigri, enda ólíkt skemmtilegra að taka við bikarnum eftir sigurleik.

eildarkeppninni lauk með miklum yfirburðum Keflavíkurliðsins sem vann alls 18 leiki af 20 og fékk því 36 stig. KR-konur urðu aðrar í deildinn með 24 stig, Grindavík var númer þrjú með 16 stig og Njarðvíkurstúlkur urðu síðastar inn í úrslitakeppnina með 14 stig. Bikarmeistarar ÍS lentu í fimmta sæti með 12 og nýliðar Hauka féllu í 2. deildina eftir góða byrjun. Keflavík mætir grönnum sínum úr Njarðvík í fyrri umferð úrslitakeppninnar og verður meira fjallað um það síðar.