Fréttir

Körfubolti | 2. febrúar 2003

KEF-KONUR: Einbeitingarleysi í lokin kostaði sigur gegn KR, 67-66

Eftir langa sigurgöngu Keflavíkurstúlkna hafa nú tveir tapleikir litið dagsins ljós með stuttu millibili, fyrst gegn Njarðvík og nú gegn KR. Fyrstu þrjá leikhlutana í gær var þó ekki margt sem benti til KR-sigurs, því Keflavík leiddi með 8 stigum, 39-47. Í byrjun fjórða leikhluta jókst síðan forskotið enn frekar og varð mest 14 stig.

En þá snerist leikurinn við, KR-stúlkur hittu sérlega vel á sama tíma og Keflavíkurkonur misstu einbeitinguna og hættu að hitta. Sérstaklega fóru þær illa með vítaskotin, því þær hittu aðeins úr einu slíku í átta tilraunum í síðasta leikhlutanum. Alls var vítanýting Keflavíkur 37% í leiknum (5 af 14) en 83% hjá KR (20 af 24). Enda söxuðu KR-ingar hægt og bítandi á forystuna og Keflavík misnotaði fjöldan allan af opnum færum. Með eðlilegri hittni hefði Keflavík auðveldlega unnið leikinn, en svo fór sem fór.

Jessica Stomski var Keflvíkingum erfið en hún skoraði 31 stig fyrir KR-inga og hirti 15 fráköst. Hjá Keflavík var varnarleikurinn stundum ágætur, en einbeitingu vantaði í sóknina eins og áður hefur verið nefnt. Anna María skoraði mest, 16 stig, og Sonia átti ágætan leik, skoraði 14 stig, tók 9 fráköst, sendi 9 stoðsendingar og stal 7 boltum. En hitti hins vegar bara úr 7 skotum af 18.

Mikilvægt er að stúlkurnar okkar geri ekki kröfur til þess að vinna alla leiki með 20 stiga mun. Slíkt hugarfar getur verið hættulegt, því við verðum að reikna með því að jöfnum leikjum muni fjölga, þar sem flest liðin í deildinni hafa styrkst að undanförnu. Framundan er nú sjálfur Bikarúrslitaleikurinn sem án vafa verður stórskemmtilegur og spennandi.