Fréttir

Körfubolti | 15. febrúar 2003

KEF-KONUR eru Deildarmeistarar eftir góðan útisigur gegn Grindavík, 58-65

Með sigri sínum í gærkvöldi tryggðu Keflavíkurstúlkur sér Deildarmeistaratitilinn með miklum yfirburðum, titillinn kominn í hús og fjórar umferðir eftir. Leikurinn í kvöld var í fyrri hálfleik ekki ólíkur mörgum leikjum liðsins í vetur, því Keflavík náði 10 stiga forskoti fyrir hlé. Reyndar hafði leikurinn verið jafn framan af en góður sprettur í lok annars leikhluta skapaði gott forskot í hálfleik, m.a. setti Erla Þorsteinsdóttir niður tvo þrista.

Seinni hálfleikur hófst með 3ja stiga körfu frá Önnu Maríu og forystan jókst í 13 stig, 29-42. Þá kom slæmur kafli hjá okkar konum og minningar um bikarúrslitaleikinn gerðu vart við sig hjá áhorfendum. Ekki gekk að skora og Grindavíkurstúlkur sóttu hart að körfunni og hittu vel utan af velli. Munurinn minnkaði og aðeins vítaskot héldu forystunni Keflavíkurmegin. Í stöðunni 41-44 var allt útlit fyrir að Grindavík myndi ná forystunni.

En Keflavíkurdömur höfðu greinilega lært ýmislegt af Bikarleiknum. Tvisvar var tekið leikhlé í fjórða leikhluta og málin rædd. Liðið tók að pressa Grindavík allan völlinn og jók hraðan í sóknarleiknum. Grindavík pakkaði í svæðisvörn og reyndi að loka svæðunum undir körfunum. Leikurinn var æsispennandi og liðin skiptust á að skora, en forystan var ávallt Keflavíkurmegin þótt hún færi niður í tvö stig. Í lokin skoraði Keflavík tvær auðveldar körfur og vann góðan 7 stiga útisigur, 58-65.

Sérlega var gaman að sjá til liðsins síðustu mínúturnar því erfitt er að missa niður forskot og búa við minningarnar úr bikarleiknum. En stelpurnar léku mjög skynsamlega. Þær léku grimma vörn og enginn grimmari en Sonia Ortega, þó hún hafi farið illa með nokkur færi nálægt Grindavíkurkörfunni. Síðan keyrðu þær fram völlinn, en ef ekki gafst færi á auðveldri körfu, þá gáfu þær sér tíma til að finna frítt skot eða senda boltinn inn í teginn á Erlu sem setti niður mikilvæg skot í lokin. Birna var einnig mjög öflug í sókninni, leitaði að færum og nýtti þau sem gáfust. Erla og Birna skoruðu sín 19 stigin hvor.

Heilt yfir var ánægjulegt að sjá stúlkurnar vinna loks jafnan leik, það eflir þær fyrir framhaldið. Nú verður efsta sætið ekki tekið frá þeim og heimasíðan óskar þeim til hamingju með Deildarmeistaratitilinn, hann var sannarlega verðskuldaður. Þetta er annar titill stúlknanna í vetur og alls fjórði titill körfuknattleiksdeildarinnar sem er aldeilis ágætur árangur. Nú eru bara þeir stóru eftir . . .

Næsti leikur stúlknanna er einkar athyglisverður, því nýkrýndir bikarmeistarar ÍS koma í heimsókn á sunnudaginn kl. 19.15. Fróðlegt verður að sjá hvort KEF-KONUR nái að hefna ófaranna frá því í Höllinni!