KEF-KONUR eru ÍSLANDSMEISTARAR 2003
Í kvöld varð meistaraflokkur kvenna í Keflavík Íslandsmeistari í tíunda skiptið á s.l. 15 árum og í sjötta skipið eftir úrslitaeinvígi gegn KR. Keflavík vann leikinn 82-61 og einvígið örugglega, 3-0. Þannig fór Keflavík ósigrað í gegnum úrslitakeppnina, 5-0 og náði 91% sigurhlutfalli í vetur þar sem liðið vann 30 af 33 leikjum sínum. Sannarlega glæsilegur árangur hjá Önnu Maríu og stúlkunum hennar (og Kjartani liðsstjóra), hreint ótrúlegir yfirburðir á leiktíðinni.
Leikurinn í kvöld var jafn og spennandi allan fyrri hálfleikinn og skildi aðeins eitt stig liðin að þegar gengið var til leikhlés, 43-42. Hraðinn hafði verið mikill og hittin ágæt hjá báðum liðum. Birna og Svava settu niður tvo þrista til að jafna leikinn, en KR hafði komist í 12-20 á upphafsmínútunum.
En svo gerðist það sem heimasíðan hafði spáð fyrir um. Keflavíkurstúlkur hafa breiðari hóp og meira úthald og þær gátu aukið kraftinn í varnarleiknum þegar seinni hálfleikur hófst, en á sama tíma þvarr KR-stúlkum mátturinn og getumunurinn kom í ljós. Reyndar gekk báðum liðum frekar illa að skora í þriðja leikhluta, Keflavík setti 15 stig gegn 7 og staðan var 58-49.
Í síðasta leikhlutanum völtuðu síðan okkar stúlkur yfir gestina og kláruðu leikinn með 21 stigs sigri, 82-61. Samtals enduðu leikirnir 239-187 (52ja stiga munur) eða að meðaltali 80-62.Enginn þarf því að efast um hverjar eru bestar í ár!
Liðsheildin var afar sterk í leiknum en enginn lék betur en Sonia Ortega í þessum leik sem var einn sá allra besti hjá henni í vetur. Hún skoraði 18 stig (hitti úr 62% skota sinna), greip 9 fráköst, gaf 7 stoðsendingar og stal 6 boltum. Vörnin var frábær í seinni hálfleik og komust KR-ingar ekkert áleiðis. Þær urðu ragar og gáfust upp fyrir ofureflinu þegar skammt var liðið á síðasta leikhlutann. Birna, Kristín, Erla og Svava skoruðu allar yfir 10 stig og Anna María litlu minna. Erla (12) og Birna (9) voru auk þess sérlega grimmar í fráköstunum.
Helstu sóknarmenn KR-inga, þær Stomski, Hildur og Helga voru nánast klipptar út úr leiknum þannig að enginn þeirra fann taktinn. Hanna var hins vegar í stuði og skoraði 20 stig. Við þökkum KR fyrir drengilega keppni og hlökkum til að mæta þeim aftur að hausti.
Nú er stóri titillinn í höfn og Keflavíkurkonur eru aftur Íslandsmeistarar. Frábær vetur að baki þar sem tveir “smærri” titlar unnust, Kjörís og Deild og síðan sá stóri, sjálfur Íslandsbikarinn. Aðeins einn titil vantar í safnið, Bikarinn, en það sýnir bara að stúlkurnar eru mannlegar og gera stöku sinnum mistök, eins og við öll. Þær sýndu hins vegar frábæran “karakter” eftir bikartapið og unnu sig út úr vandræðunum með frábærum hætti, því þær hafa unnið alla leiki síðan, og það sem flottast er, fimm í röð á sannfærandi hátt í úrslitakeppninni.
Heimasíðan og sjórn körfuknattleiksdeildarinnar vill óska stelpunum til hamingju með veturinn og sæmdarheitið ÍSLANDSMEISTARAR – besta liðið á landinu!