Fréttir

Körfubolti | 20. mars 2003

KEF-KONUR: Frábær byrjun skóp öruggan sigur í fyrsta leiknum gegn Njarðvík

Það var greinilegt að góður andi sveif yfir íþróttahúsinu við Sunnubraut þegar fyrsti leikur Keflavíkurkvenna í úrslitakeppni 1. deildar kvenna hófst gegn Njarðvíkurstúlkum. Keflavíkurliðið hélt áfram þar sem drengirnir hættu kvöldið áður og hreinlega kafsigldu gestina í byrjun.

Hraðinn var mikill og flest öll skotin rötuðu rétta leið. Eftir nokkrar mínútur var staðan 11-2 og stuttu seinna 34-7. En þá slökuðu stúlkurnar á og Njarðvíkingar komust inn í leikinn með meiri yfirvegun. Enda minnkaði munurinn verulega og var 15 stig í hálfleik, 42-27.
Á þessum kafla var varnarleikurinn grimmur og gestirnir virkuðu hálf skelkaðir gegn pressuvörn Keflavíkur. Mörgum boltum var “stolið” og skotnýtingin var góð. “Stóru stelpurnar”, Erla Þorsteinsdóttir og Anna María þjálfari voru atkvæðamiklar og sölluðu niður körfum, auk þess sem Sonia Ortega var mjög spræk.

Í seinni hálfleiknum var töluvert jafnræði með liðunum til að byrja með, einkum fyrir frábæran leik hjá Ingibjörgu Vilbergsdóttur, 14 ára Njarðvíkingi, sem er gríðarlegt efni, og sótti hún grimmt inn í vörn Keflavíkur og uppskar margar körfur. En sigrinum varð ekki ógnað og Keflvíkingar gátu leyft öllum leikmönnum að spila og allir náðu þeir (þær) að skora.

Í lokin var leikurinn alger eign heimamanna sem sigruðu með 25 stiga mun, 87-62, og þykja nú verulega sigurstranglegar í þessu einvígi. Þess ber þó að minnast að Keflavíkurpiltar sigruðu ÍR á dögunum í fyrri heimaleiknum með tæpum 30 stigum og töpuðu síðan útileiknum . . . þannig að allt getur gerst.

Keflavíkurstúlkur léku lengst af ágætlega í gær, ef undan er skilin skotnýtingin undir körfu gestanna, en ansi mörg góð færi fóru forgörðum. Ef þau hefðu verið nýtt “með eðlilegum hætti” hefði sigurinn orðið enn stærri.

Næsti leikur er í Njarðvík á föstudaginn og má reikna með að heimamenn bíti verulega frá sér. Við hvetjum alla til að mæta og hvetja stúlkurnar okkar, því þær leika svo sannarlega hraðan og skemmtilegan bolta.
ÁFRAM KEFLAVÍK!