Fréttir

Körfubolti | 18. janúar 2003

KEF-KONUR: Frábær varnarleikur tryggði 18 stiga sigur gegn Grindavík og sæti i Bikarúrslitum

Það er frábært að horfa á kvennalið Keflavíkur leika körfubolta. Sá sem þetta ritar hefur séð íslenskan kvennakörfubolta í hartnær tvo áratugi og ekki minnist hann þess að hafa séð lið leika af sama krafti og Keflavíkurliðið gerir, leik eftir leik. Enn einn 80 stiga leikurinn var staðreynd í gær þegar stúlkurnar lögðu stöllur sínar úr Grindavík með 82 stigum gegn 64.

Keflavík náð strax yfirhöndinni í leiknum með góðri vörn og hröðum sóknarleik. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 16-22 og leikurinn virtist þróast eins og oft hefur sést áður í vetur. En Grindvíkingar voru ekki tilbúnir að gefast upp og spýttu í lófana. Með Denise Shelton í fararbroddi minnkuðu þær munin og auk þess settu Sólveig og Sandra niður þrista. Á sama tíma fóru Keflavíkurstúlkur kannski örlítið of geyst í sóknarleikinn og gerðu fullmörg mistök. Enda skoruðu þær bara 10 stig í öðrum leikhluta. Á þessum kafla voru bæði Erla Þorsteins og Anna María utan vallar og þá var eins og sóknarleikurinn væri ekki jafn markviss. Staðan í hálfleik var 28-32 og spennan fór vaxandi.

Fljótlega í byrjun seinni hálfleiks náði Keflavík aftur góðum spretti og komst 15 stigum yfir, 39-54, mest vegna frábærs varnarleiks Soniu og Birnu, en Birna hafði það erfiða hlutverk með höndum að gæta Denise, sem er afburða leikmaður. En Birna leysti það eins vel af hendi og mögulegt var og hreinlega "límdi" sig á hana. Enda þvarr Denise máttur eftir því sem á leikinn leið.

Þegar áhorfendur héldu að leikurinn væri að "klárast" fóru Grindavíkurstúlkur aftur að saxa á forskotið og um miðjan fjórða leikhluta var munurinn kominn niður í fimm stig, 55-60. Það fór um keflvíska áhorfendur sem veltu því fyrir sér í hljóði hvort nú væri kannski komið að fyrsta tapleiknum. Væru stúlkurnar orðnar stressaðar?

En þá sýndu þær allan sinn styrk. Anna María þjálfari og Kristján liðsstjóri tóku leikhlé og farið var yfir málin. Og ekki var að sökum að spyrja. Stúlkurnar settu allt í botn og hreinlega kafsigldu andstæðingana á síðasta kaflanum. Aftur var Sonia ótrúleg í vörninn, varði skot og stal boltum, og síðan gekk boltinn gríðarvel upp völlinn og stelpurnar fengu hvert opna færið á fætur öðru, sem flest voru nýtt. Erla Þorsteins fór á kostum á þessum kafla og setti öll sín skot niður, eins var Kristín Blöndal sterk á lokasprettinum. Keflavíkurstúlkur brugðust við mótspyrnu á besta hugsanlega máta, þær spýttu í lófana og hertu sinn leik. Í lokin var þetta bara spurning um hversu stór sigurinn yrði.

Nítjándi sigurleikurinn í röð var staðreynd og þátttaka í Bikarúrslitum í höfn. Glæsilegt stúlkur!