KEF-KONUR hefja úrslitakeppnina í kvöld gegn Njarðvík
Líkt og hjá körlunum mætast grannarnir úr Keflavík og Njarðvík í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna þetta árið. Njarðvíkurliðið hefur staðið sig vel í vetur og varð t.d. fyrsta liðið til að vinna sigursælar Keflavíkurkonur eftir langa sigurgöngu. Það er ávísun á skemmtilega viðureign, en það félag sem fyrr sigrar í tveimur leikjum vinnur sér rétt til að leika um Íslandsmeistaratitilinn gegn sigurvegaranum úr viðureign KR og Grindavíkur.
Ekki þarf að fjölyrða um styrk kvennaliðs Keflavíkur sem leikið hefur liða best í vetur, þrátt fyrir að hafa tapað á eftirminnilegan hátt í Bikarúrslitunum. Liðsheildin er sterk og breiddin er mikil, margar geta skorað yfir 10 stig í leik og gerir það andstæðingunum oft erfitt fyrir. Helsti styrkurinn er þó varnarleikurinn með þær Soniu og Birnu í fararbroddi úti á vellinum og Erlu undir körfunum. Ef góð stemming næst í varnarleikinn gefast mörg færi á auðveldum körfum og hefur það oftar en ekki verið lykillinn að góðum leikjum í vetur.
Njarðvíkurliðið hefur góðan Kana í Krystel Scott sem er fjölhæfur skorari og setur yfirleitt yfir 20 stig í leik. Þess utan er Helga sterk undir körfunum og baráttan yfirleitt mjög góð hjá liðinu.
Ljóst er því að baráttan verður allsráðandi þegar grannarnir mætast í kvöld og von á skemmtilegum leikjum. Við höfum að vanda trú á okkar konum og teljum að þær eigi að geta náð sigri í kvöld, ef varnarleikurinn og hraðinn verða í hávegum.
Nú er bara að skella sér á völlinn og hvetja stelpurnar – það hefur mikið að segja fyrir árangurinn – ÁFRAM KEFLAVÍK!