Fréttir

Körfubolti | 12. febrúar 2003

KEF-KONUR keppa um Deildarmeistaratitilinn í Grindavík á morgun, fimmtudag

Anna María og stúlkurnar þurfa að hrista af sér óöryggið eftir bikartapið og ná upp fyrri styrk áður en úrslitakeppnin hefst. Staða þeirra í deildinni er afar vænleg og telja má líklegt að þeim takist að halda efsta sætinu til loka leiktíðar, til að svo megi vera þurfa þær aðeins að vinna einn af þeim fimm leikjum sem eftir eru. Þær gætu meira að segja tryggt sér deildarmeistaratitilinn í leiknum á fimmtudaginn!

Ef marka má síðustu leiki eru liðin í deildinni mjög jöfn um þessar mundir, þrátt fyrir ólíka stöðu. Hart er barist um sætin í úrslitakepnninni og þar berjast Grindavíkurkonur við Njarðvík, Hauka og ÍS. Staða Grindvíkinga og Njarðvíkinga er mjög vænleg. Grindavík hefur á að skipa ágætu liði með galdrakvendið Denise Shelton í fararbroddi. Okkar konur eiga nú kannski fyrst og fremst í erfiðleikum með eigið sjálfstraust og þegar sú barátta vinnst verða þeim allir vegir færir að nýju.

Leikurinn á fimmtudaginn í Röstinni er kærkominn áskorun og mun reyna verulega á stelpurnar. Við vonum að þær finni sem fyrst aftur fyrri styrk og leikgleði. Ef það tekst eiga þær góða möguleika á hagstæðum úrslitum.