KEF-KONUR leika aftur við Njarðvík í kvöld
Eftir öruggan sigur í fyrsta leik í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna mætast grannarnir úr Keflavík og Njarðvík öðru sinni í íþróttahúsinu í Njarðvík í kvöld kl. 19.15. Með sigri getur Keflavík tryggt sér sæti í úrslitunum en ef Njarðvík vinnur þá kemur til oddaleiks í Keflavík á mánudaginn.
Í fyrsta leiknum mátti greina töluvert stress og óöryggi meðal Njarðvíkurstúlkna, enda eru þær ekki vanar úrslitakeppni. Þær hafa hins vegar á baráttuglöðu liði að skipa og sýndu fyrr í vetur að þær geta unnið Keflavík ef svo ber undir. Keflavíkurstúlkur mega því ekki ganga út frá því að þessi leikur verði jafn auðveldur og sá fyrsti, því rangt hugarfar leiðir af sér slakan leik.
Best er að búa sig undir hörkubaráttu og gera ráð fyrir alvöru spennuleik, því Njarðvíkingar munu örugglega ekki gefa sig fyrr en í fulla hnefana. Engum blöðum er um það að flétta að Keflavíkurliðið er sterkara á pappír, en það veitir ekkert forskot þegar í leikinn er komið, nema hugur fylgi máli. En ef stúlkurnar mæta mótiveraðar og rétt stemmdar eiga þær góðan séns á að klára þessa viðureign í kvöld.
ÁFRAM KEFLAVÍK!