Fréttir

Körfubolti | 28. mars 2003

KEF-KONUR taka á móti KR í fyrsta úrslitaleiknum á laugardaginn

Eftir frábæra leiktíð er komið að hápunktinum í kvennaboltanum – sjálfri úrslitarimmunni um Íslandsmeistaratitilinn. Það fer vel á því að það séu Íslandsmeistarar KR og Deildarmeistarar Keflavíkur sem mætast þar sem þessi tvö félög hafa nánast einokað keppnina um titilinn eftirsótta. Þrátt fyrir yfirburði Keflavíkur í deildarkeppninni er ekki fram hjá því að horfa að KR styrktist verulega þegar á leið og hefur leikið verulega vel eftir að Jessica Stomski kom til liðsins og Hanna Kjartansdóttir steig upp úr meiðslum. Því er von á hörkukeppni milli þessara sigursælu liða og öruggt er að enginn verður vonsvikinn af því að leggja leið sína í íþróttahúsið á laugardaginn og hvetja stúlkurnar til dáða.

Skoðum aðeins sögu þessara félaga í kvennaboltanum:

Frá því úrslitakeppni var tekin upp í 1. deild kvenna árið 1993 hafa Keflavík og KR mæst 7 sinnum í lokaúrslitum (1993, 1994, 1996, 1998, 1999, 2000, 2001). Keflavík hefur sigrað í 5 af þessum einvígum þar af þeim 4 fyrstu (1993, 1994, 1996, 1998, 2000), en KR hefur tvívegis haft betur (1999, 2001) og þá bæði skiptin 3-0.

Í þessum sjö úrslitaeinvígum Keflavíkur og KR hefur Keflavík yfir 5-2. Alls eru leikir liðanna í lokaúrslitum orðnir 27 talsins. Keflavík hefur sigrað í 15 en KR í 12. Aðeins einum af þessum 27 leikjum hefur verið framlengt, en það var 1994. Þá var annar leikur liðanna tvíframlengdur (63-63, 71-71) en leiknum lauk með sigri KR 80-77.

Heildarstigaskor í leikjunum 27 er 1770-1680 fyrir Keflavík eða 66-62 að meðaltali. Stærsti sigur Keflavíkur á KR í lokaúrslitum er 43 stig (70-37) árið 1996, en stærsti sigur KR á Keflavík er 29 stig (76-47) 1999. Hæsta skor Keflavíkur í þessum leikjum er 97 stig (97-72) árið 1993 og það lægsta 42 stig (58-42) árið 2000. Hæsta stigaskor KR er er 90 stig (90-81) árið 1999, en það lægsta 37 stig (37-70) árið 1996.

Leikir Keflavíkur og KR í deildinni í vetur hafa verið á ýmsa vegu. Keflavík vann fyrsta leikinn á útivelli 61-82 og þann næsta 92-37 á heimavelli. Í þriðja leiknum náði KR að knýja fram sigur í lokin 67-66 í DHL-höllinni, en Keflavík sigraði í fjórða leik liðanna í Keflavík þann 10. mars sl. 73-71. Keflavík sigraði því 3-1 í leikjum liðanna í vetur.

Undir eftirfarandi slóð má lesa um sögu úrslitakeppni kvenna frá upphafi: http://www.kki.is/greinar.asp?Adgerd=ein_grein&Recid=144