Fréttir

Körfubolti | 22. mars 2003

KEF-KONUR tryggja sér sæti í úrslitunum með 72-79 sigri gegn Njarðvík og 2-0 sigri í einvíginu

Það fór eins og svo margir höfðu spáð, að Keflavíkurstúlkur unnu báða leikina gegn grönnum sínum úr Njarðvík í undanúrslitunum. Fyrri leikurinn var eign Keflavíkur frá upphafi til enda, en leikurinn í gær var jafnari og spennandi fram í miðjan síðasta leikhluta, en þá skildu leiðir.

Njarðvíkurstúlkur mættu til leiks með meira sjálfstraust en í Keflavík um daginn. Krystal Scott átti aldeilis frábæran dag, frá upphafi til enda, og skoraði tæpan helming stiga heimamanna, þar af hitti hún sjö sinnum úr átta 3ja stiga tilraunum. Reyndar var góð 3ja stiga hittni Krystal og Auðar ein helsta ástæðan fyrir því hversu vel þeim gekk að halda í við Keflavík.

Munurinn á liðunum var aldrei mikill en Keflavík hafði þó yfirleitt frumkvæðið. Þegar lítið var liðið af síðasta leikhluta komu þrjár 3ja stiga körfur hjá Keflavík á góðum tímapunkti frá Birnu, Svövu og Erlu, og með þeim hristu stúlkurnar Njarðvík af sér, ef svo má segja. Síðustu mínúturnar lék Keflavík af skynsemi og sótti mikið inn á þær Önnu Maríu og Erlu sem nýttu færin ágætlega. Auk þess var allt liðið verulega aktíft í sóknarfráköstum.

Anna María, Erla og Birna léku vel allan tímann og skoruðu grimmt. Sonia var dugleg í fráköstum og varnarleiknum en nýtti færin sín skelfilega illa undir körfunum. Reyndar fór allt liðið frekar illa með dauðafærin, og hefði getað gert mun betur þar. Eins var varnarleikur Keflavíkur frekar slakur fyrstu þrjá leikhlutana sem sást best á því að Njarðvíkurstúlkur fengu opin skotfæri í gríð og erg. En loks í síðasta leikhluta hertist vörnin og kannski var það lykillinn að því að þægileg forysta náðist sem dugði til sigurs.

Mynd fengin að láni hjá vf.is

Til hamingju stúlkur!

Nú er smá pása, kannski helst til löng (!), en mesta spennan fyrir Keflavík er nú að sjá hverjir verða mótherjarnir í úrslitunum. Grindavík kom á óvart og vann KR í öðrum leik liðannan og fróðlegt verður að sjá hvort þeim takist að endurtaka leikinn í Vesturbænum á mánudaginn.