KEF-KONUR: Vélin hikstaði loks eftir fjögurra mánaða toppkeyrslu – 2ja stiga tap gegn Njarðvík
Það sannaðist enn og aftur á miðvikudagskvöldið að enginn vinnur endalaust. Grannar vorir úr Njarðvík náðu að stöðva sigurgöngu okkar stúlkna sem varði í um fjóra mánuði og innihélt alls 19 leiki í þremur keppnum, Íslandsmóti, Kjörískeppni og Bikarkeppni KKÍ.
Ekki var þó margt í fyrri hálfleiknum sem benti til þess að Keflavík myndi tapa leiknum. Staðan var 30-47 í hálfleik og all samkvæmt áætlun. En í seinni hálfleik hrundi leikur liðsins og fyrsti langi lélegi kafli liðsins leit dagsins ljós. Þar kom líka til góður leikur Njarðvíkinga sem gáfust ekki upp þrátt fyrir að hafa verið 17 stigum undir í hálfleik.
Þriðji leikhlutinn var arfaslakur og Keflavík gerði aðeins 6 stig, sá fjórði var litlu betri og liðið skoraði bara 11 stig í honum. Einhverra hluta vegna náðist ekki upp stemming í varnarleikinn sem hefur verið aðall liðsins í vetur. Og án varnarleiksins hverfur hraðinn og því varð sóknarleikurinn hægur og vandræðalegur. Njarðvíkingar gengu á lagið og minnkuðu forskotið hægt og bítandi og tryggðu sigurinn með síðustu körfu leiksins. 66-64 sigur Njarðvíkur var staðreynd.
Keflavíkurstúlkur fá því að kynnast “tap-tilfinningunni” í fyrsta sinn á þessari leiktíð og gera má ráð fyrir að sú tilfinning hvetji þær til dáða í næstu leikjum. Erla Þorsteinsdóttir lék ágætlega, en heilt yfir var liðið slakt í þessum leik, sérstaklega í seinni hálfleik.
Næst á dagskrá er leikur gegn Haukum í kvöld og gaman verður að sjá hvernig stúlkurnar bregðast við þessum fyrsta ósigri vetrarins. Heimasíðan er þess fullviss að þær bretta upp ermar og spýti í lófa.
ÁFRAM KEFLAVÍK!