Kef-stúlkur unnu silfur á Unglingalandsmótinu
Keflavík sendi eitt lið til leiks á Unglingalandsmótið sem haldið var á Vík í Mýrdal um verslunarmannahelgina, en það var lið skipað 15 ára stúlkum sem keppti í flokki 15 og 16 ára stúlkna. Alls kepptu fjögur félög í þeim flokki, auk Keflavíkur voru það Snæfell (HSH), Kormákur (HSS/USVS) og Drangur (USVS). Lið Breiðabliks (UMSK) lék einnig með sem gestir, því þær höfði eldri stúlkur innanborðs.
Leikir Keflavíkur voru upp og ofan, en eftir góðan sigur gegn heimastúlkum í Drangi (33-10) léku þær til úrslita gegn Snæfelli og töpuðu naumt, 28-26, í hörkuleik. Keflavíkurstúlkur voru aðeins fimm í ferðinni, Hildur, Helena Brynja, Guðlaug Anna, Thelma Dís og María, þannig að ekkert var um innáskiptingar, en Íris Guðmundsdóttir bættist við í lokaleiknum.
Annars var keppnin ágæt og ferðin á landsmótið ánægjuleg.