Fréttir

Körfubolti | 7. nóvember 2002

Keflavík - Breiðablik 120 - 98

Byrjunin var kraftmikil í Smáranum í gærkvöldi þegar Keflavík og Breiðablik mættust í fyrri hluta 8 liða úrslita í Kjörísbikarnum. Eftir fyrsta leikhluta var staðan 34 - 19 og allt stefndi í stórsigur okkar manna. Vörnin var öflug og heimamenn áttu í stökustu vandræðum með sóknarleikinn. Í raun voru úrslitin strax ráðin þrótt liðin hafi að mestu leyti skiptst á körfum það sem eftir lifði leiks.

Damon var geysiöflugur, en hafði lítið fyrir þeim 35 stigum sem hann setti. Annars vöktu 3ja stiga bombur okkar drengja mikla lukku meðal áhorfenda, ekki síst frá Guðjóni Skúlasyni sem setti niður fimm slíkar.

Sjá statistik hér.