Fréttir

Karfa: Karlar | 21. nóvember 2009

Keflavík - Grindavík annað kvöld

Það verður sannkallaður stórleikur háður annað kvöld í Toyota Höllinni, en þá mæta Grindvíkingar í heimsókn í Iceland Express-deild karla. Það er til mikils að vinna fyrir bæði lið, því Grindavík er í 6. sæti deildarinnar með 8 stig og þurfa á sigri að halda til að vera í toppbaráttunni í vetur. Keflvíkingar eru í 2. sæti deildarinnar með 12 stig og með sigri tekst þeim að hliðra sér upp að Njarðvík í toppsæti deildarinnar, þó munu Njarðvíkingar eiga leik til góða. Ekkert annað en sigur kemur til greina hjá okkur Keflvíkingum og viljum við sjá alla bæjarbúa í húsið til að hvetja strákana áfram! Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Áfram Keflavík!