Fréttir

Karfa: Konur | 24. nóvember 2009

Keflavík - Hamar á morgun

Annað kvöld mæta Hamars-stúlkur í Toyota Höllina og má búast við hörkuleik. Keflavíkur-stúlkur hafa verið á blússandi siglingu undanfarna leiki og Hamars-stúlkur eru um þessar mundir í öðru sæti Iceland Express-deild kvenna. Það er því til mikils að vinna fyrir bæði lið, en sérstaklega mikilvægt fyrir Keflavíkur-stúlkur að bera sigur úr býtum ef þær ætla sér stóra hluti í vetur í deildinni. Í stuttu spjalli við greinarhöfund sagði Jón Halldór Eðvaldsson, þjálfari Keflavíkur-kvenna, að leikurinn legðist vel í sig og hann myndi spila með svipuðu sniði og hann hefur gert í síðustu leikjum. „Það er ennþá verið að vinna með stelpur sem eru að koma inn og erum við að pússla saman liðinu, þær eru allar vel stemmdar, kátar og glaðar. Við munum gefa allt sem við eigum í þetta á morgun." Aðspurður sagði hann að Pálína myndi spila með liðinu á morgun og hún væri öll að koma til. „Hún lítur betur út með hverjum degi sem líður." 

Allir eru hvattir til að mæta í Toyota Höllina og hvetja stelpurnar til dáða. Leikurinn hefst klukkan 19:15.

Áfram Keflavík!