Keflavík - ÍR í kvöld
ÍR-ingar mæta í heimsókn í kvöld í Toyota Höllina og hefst leikurinn klukkan 19:15. Vildarkortin verða til sölu á leiknum 
og kosta þau 5000 kr. Vildarkortin gilda á þessa leiki. Þeir sem hafa áhuga á að sitja niðri á bekkjunum í vetur geta komið í hurðina niðri og skráð kortanr. og aðrar upplýsingar sem þarf. Það kostar 2500 kr. á mánuði að sitja niðri, en því fylgja líka veitingar á öllum leikjum í hálfleik.
Tippklúbburinn Lukkustrákar verður einnig starfræktur í vetur hjá Hemma og Bigga, en þeir sem hafa áhuga á að taka 
þátt í þeim klúbbi geta haft samband við piltana á leiknum í kvöld.
Keflvíkingar munu skarta grunnútgáfu af búningum með nýrri merkingu í kvöld. Landsbankinn ákvað að afsala sér 
merkingu á búning Keflvíkinga og fengu Keflvíkingar að velja sér eitt gott málefni til að vera framan á búningunum 
í vetur. Málefnið sem varð fyrir valinu var Krabbameinsfélag Suðurnesja, en þeir fá einnig 500.000kr. styrk frá 
Landsbankanum af þessu tilefni.
En eftirfarandi tilkynning kemur frá Landsbankanum:
Samfélag í nýjan búning
-          Landsbankinn afsalar merkingum á búningum íþróttafélaga til góðra málefna
-          Landsbankinn styrkir átta góð málefni fyrir fjórar milljónir króna
Samfélag í nýjan búning er yfirskrift nýrrar stefnu sem Landsbankinn hefur sett sér um stuðning bankans við 
íþróttafélög. Landsbankinn styrkir íþróttafélög um land allt og markmiðið er að tengja saman stuðning bankans 
við íþróttir og mannúðarmál.
Hugmyndafræði stefnunnar er nýstárleg. Landsbankinn afsalar sér öllum merkingum á búningum samstarfsfélaga 
og býður íþróttafélögunum að velja gott málefni til að setja á búninga sína. Samhliða verður stofnaður áheitasjóður 
fyrir málefnið og félagið. Fyrir hvern sigur í deildakeppni greiðir Landsbankinn tiltekna upphæð. Íþróttafélagið á 
þann kost að  bjóða fyrirtækjum og einstaklingum að heita á sig og málefnið. Öll áheit munu skiptast jafnt milli 
málefnis og íþróttafélags.
„Hin nýja hugmyndafræði bankans snýst um að tengja saman íþróttafélög og samtök eða félög sem láta að sér 
kveða í mannúðarmálum,“ segir Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbankans. „Með þessum hætti geta 
íþróttafélögin og stuðningsmenn þeirra eða aðrir styrktaraðilar tekið þátt í því með Landsbankanum að styðja 
við mannúðarmál. Stuðningur Landsbankans við íþróttaiðkun barna, unglinga og fullorðinna minnkar ekki, en 
heildarframlag til mannúðarmála eykst bæði beint og óbeint.”
Alls munu átta íþróttafélög hefja þessa vegferð með Landsbankanum og hvert þeirra hefur valið sitt málefni í 
samvinnu við bankann. Í tilefni af stofnun áheitasjóða fyrir málefnin átta mun Landsbankinn styrkja hvert þeirra 
um hálfa milljón króna, eða samtals fjórar milljónir króna.
Fyrirmyndir verkefnisins
Verkefnið Samfélag í nýjan búning á sér fyrirmyndir. Í tengslum við Landsbankadeild karla og kvenna stóð 
Landsbankinn fyrir verkefninu Skorað fyrir gott málefni á árunum 2006-2007. Bankinn greiddi þá ákveðna upphæð 
fyrir hvert mark sem liðin skoruðu í tilteknum umferðum Landsbankadeildarinnar og rann hún til málefna sem 
félögin völdu sér. Markmiðið var þá eins og nú að tengja saman stuðning við íþróttir og mannúðarmál.
Landsbankinn sækir ekki síður innblástur í framtak meistaraflokks kvenna í Aftureldingu sem síðustu þrjú ár hefur 
vakið athygli á árvekniátakinu Bleiku slaufunni með því að hafa hana framan á búningum liðsins. Með því safnar 
félagið áheitum hjá einstaklingum og fyrirtækjum fyrir hvert mark sem liðið skorar og er ágóðanum skipt milli 
málefnisins og félagsins. Landsbankinn og Afturelding hafa nú ákveðið að taka saman höndum um að Bleika 
slaufan verði áfram framan á búningum félagsins.
Val íþróttafélaganna
Landsbankinn lét íþróttafélögunum það eftir að velja sér málefni. Sum þeirra völdu málefni sem tengist heimabyggð 
og á það til að mynda við um Keflavík og Akureyri.  Ungmennafélagið Fjölnir valdi Vímulausa æsku en 
forvarnarstarf er málaflokkur sem Ungmennafélagshreyfingin lætur sig mikið varða. Málefni hjartveikra eru ÍR-ingum 
hugleikin og sama gildir um val Fram á Ljósinu, knattspyrnudeildar Breiðabliks á Hringnum og handknattleiksdeildar 
Selfoss á Einstökum börnum.
Hin nýja stefna Landsbankans mun taka til allra helstu samninga bankans við íþróttahreyfinguna og á einkum við
þar sem bankinn hefur með fjárstuðningi sínum fengið auglýsingasvæði á búningum.


