Fréttir

Körfubolti | 25. mars 2003

Keflavík - KR í úrslitum kvenna

Í gær sigraði KR Grindavík nokkuð örugglega og vann sér þar með sæti í úrslitunum. Það verða því erkióvinirnir og stórveldi kvennaboltans, KR og Keflavík, sem eigast við í 3-5 leikjum á næstu vikum.

Von er á frábærri skemmtun en leikirnir hafa verið settir á sem hér segir:

1.  Keflavík - KR laugardag 29. mars kl. 17:30 í Keflavík

2.  KR - Keflavík mánudag 31. mars kl. 19:15 í DHL-höllinni

3.  Keflavík - KR miðvikudag 2. apríl kl. 19:15 í Keflavík

4.  KR - Keflavík sunnudagur 6. apríl kl. 19:15 í DHL-höllinni

5.  Keflavík - KR miðvikudagur 9. apríl kl. 19:15 í Keflavík