Fréttir

Körfubolti | 28. september 2003

Keflavík - Njarðvík á morgun, mánudag

Jæja þá er komið að fyrsta innanbæjarslagnum í vetur. Ílslandsmeistarar Keflavíkur mæta grönnum sínum og erkifjendum úr Njarðvík kl. 21 á morgun, mánudag, í íþróttahúsinu að Sunnubraut. Á undan, kl. 19, leika Grindvíkingar við Breiðablik.

Ekki þarf að fjölyrða um þessa viðureign, hún stendur ávallt fyrir sínu, og skiptir þá litlu hvort liðið er "betra" þá stundina. Tímavörðurinn hefur lýst yfir áhyggjum af "rígsleysi" milli félaganna og minntist um daginn hér á síðunni á hópslagsmál í Reykjanesmótinu hér um árið, líklega fyrir um 10 árum eða svo. Greinilegur söknunartónn var í skrifunum . . .

Hvort slegist verði á morgun er óvíst, en víst er að leikmenn leggja sig ávallt extra mikið fram til að sigra nágrannan. Það er alltaf gaman að vera bestur í bænum, enda er oftar en ekki það lið sem er best hér í bæ best á landinu. Frá upphafi úrslitakeppni úrvalsdeildarinnar fyrir tuttugu árum hafa þessi félög orðið meistarar 16 sinnum á 20 árum eða í 80% tilfella (Njarðvík 10 sinnum og Keflavík 6 sinnum).

Þessi leikur er líka kryddaður með þremur nýjum Könum, einum í Njarðvík og tveimur í Keflavík, sem gaman er að berja augum og mæla út. Þar fyrir utan er alltaf fróðlegt að skoða hvernig liðin koma undan sumri.

Bæði félögin eiga möguleika á að komast í úrslitaleik Reykjanesmótsins gegn Haukum. Ef Keflavík vinnur kemst Keflavík í úrslit. Ef Njarðvík vinnur, þá fer Njarðvík í úrslit ef Breiðablik vinnur Grindavík, annars fer að öllum líkindum Grindavík í úrslit (nema Njarðvík vinni Keflavík með um 45 stiga mun).