Keflavík - Njarðvík í kvennaboltanum á morgun!
Eitilhörð nágrannarimma verður háð í Iceland Express-deild kvenna á morgun, en þá mæta Njarðvíkurstúlkur með Sverrir Þór Sverrisson í fararbroddi í Toyota Höllina. Njarðvíkurstúlkur hafa staðið sig vel það sem af er tímabils og stóðu virkilega í hárinu á Keflavíkurstúlkum þegar liðin áttust við í Ljónagryfjunni fyrr á tímabilinu. Keflavíkurstúlkur sitja eins og staðan er í 2. sæti deildarinnar með 12 stig en Njarðvíkurstúlkur í því 3. með 8 stig. Það er að sjálfsögðu von á hörkubaráttu milli þessara liða og er þetta viðureign sem enginn stuðningsmaður má láta fram hjá sér fara.
Leikurinn hefst klukkan 17:00.
Annars er leikjaröðun morgundagsins svona: