Keflavík - Njarðvík í kvöld !
Það er að duga eða drepast fyrir bæði lið í kvöld, en þá mætast Keflavík og Njarðvík í 8-liða úrslitum Subway-bikarkeppninnar. Leikurinn fer fram í Toyota Höllinni. Bæði lið hafa styrkt sig með kana, en Keflvíkingar fengu Draelon Burns sem hefur verið að koma mjög vel út í leikjum, og Njarðvíkingar fengu Nick Bradford. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og viljum við minna fólk á að mæta tímanlega! Það verður troðfullt hús og er þetta viðburður sem ekkert mannsbarn á að láta framhjá sér fara!
ATHUGIÐ AÐ VILDARVINAKORT GILDA EKKI Á LEIKINN Í KVÖLD!
ÁFRAM KEFLAVÍK!