Keflavík - Njarðvík kl. 16:00 í dag
Það verður stórleikur í Toyota Höllinni í dag í kvennaboltanum þegar Njarðvíkur-stúlkur koma í heimsókn. Keflavíkur-stúlkur höfðu betur í fyrri viðureigninni, en Njarðvíkur-stúlkur hafa verið að koma virkilega á óvart í deildinni í vetur. Það verður barist um hvern bolta og eiga áhorfendur eflaust eftir að fá nóg fyrir aurinn sinn. Allir hvattir til að koma og styðja við bakið á stelpunum!
Leikurinn hefst klukkan 16:00
Áfram Keflavík!