Fréttir

Körfubolti | 22. mars 2003

Keflavík - Njarðvík: Risaslagur Bikarmeistara og Íslandsmeistara hefst á morgun, sunnudag, kl. 19.15 í Keflavík – spekingarnir spá Njarðvík sigri

Nú byrjar fjörið fyrir alvöru hjá körfuboltaunnendum Keflavíkur, því fátt fær hjörtun til að slá hraðar en grannaslagurinn. Ef marka má söguna og leiki liðanna upp á síðkastið má búast frábærri skemmtun og háspennu-lífshættu fyrir áhorfendur.

Töluverð umfjöllun var um leikina í Mogganum í morgun og DV í gær. Þar var rætt við þjálfara og leikmenn ýmissa liða og þeir beðnir um að spá fyrir um úrslit. Skemmst er frá því að segja að allir þjálfararnir, Ingi KR, Eggert ÍR og Bárður Snæfelli, töldu að Njarðvík myndi vinna Keflavík 3-1 eða 3-2. Fimm leikmenn voru spurðir um álit og töldu þrír þeirra að Njarðvík hefði sigur, en tveir að Keflavík myndi vinna. Ef við lítum á spekinganna í heild má sjá að 6 af 8 spá Njarðvík sigri en aðeins 2 af 8 spá Keflavík sigri. Ef spekingarnir hafa mikið vita á boltanum má því kannski segja að 75% líkur séu á Njarðvíkursigri, en aðeins 25% líkur á Keflavíkursigri.

En heimasíðan er á öðru máli (auðvitað!). Njarðvíkingar eru á fantasiglingu um þessar mundir og lögðu KR-inga í tveimur spennandi leikjum um daginn, þar sem sigurviljinn og baráttan komu bersýnilega í ljós. Njarðvík er með Teit og fleiri góða leikmenn en spurningin er hvort okkar menn séu kannski enn betri? Berum aðeins saman liðin:

Keflavík er Kjörísmeistari og Bikarmeistari og hefur unnið alls 30 af 36 leikjum vetrarins sem jafngildir 83% sigurhlutfalli sem er áberandi best allra liða í vetur. Njarðvík er Íslandsmeistari frá því í fyrra og hefur unnið alls 19 af 32 leikjum sem jafngildir 59% sigurhlutfalli. Heilt yfir er því árangur Keflavíkur mun betri enda tókst Keflavik að ná bæði Kjörís og Bikar úr höndum Njarðvíkinga. Þess ber þó að geta að síðan Njarðvík skipti um Kana í annað skiptið í vetur og fékk Harris til liðsins hafa þeir unnið alla sína 5 leiki. Að sama skapi má nefna að síðan Ed Saunders gekk til liðs við Keflavík hefur liðið alls unnið 14 af 16 leikjum eða 88%.

Viðureignir liðanna í vetur hafa verið spennandi eins og venulega. Njarðvík vann báða deildarleikina, en Keflavík hafði sigur í þeim leik er mestu máli skipti hingað til og sló Njarðvík út úr bikarnum. Í þeim leik lék Ed sinn fyrsta leik með Njarðvík, en í fyrri deildarleiknum lék Pete Philo með Njarðvík og í þeim seinni G.J. Hunter. Liðin í núverandi mynd hafa ekki mæst og segja má að bæði séu sterkari nú en fyrr í vetur þannig að allt stefnir í jafna leiki.

Ed að setja niður stökkskot í bikarleik KEF og NJA í janúar s.l.

Berum aðeins saman leikmennina: Njarðvík hefur fjóra áberandi góða leikmenn, Teit, Harris, Friðrik og Pál. Af þessum fjórum skiptir Teitur kannski mestu máli, því hann getur smellt mörgum þristum á stuttum tíma og er oft svaka heitur í alvöru leikjum. Þess utan eru nýliðarnir Ólafur og Guðmundur, keflvísku framherjarnir Halldór og Þorsteinn Húnfjörð og vara-skytturnar Ragnar og Sigurður. Allir þessir geta átt góða leiki og leikið góða vörn, en stigaskorunin hvílir að miklu leyti á þeim fjórum fyrstnefndu. Þó hefur Ragnar oft átt það til að smella þristum á Keflavík, hver veit hvað hann gerir núna.

Lið Keflavíkur hefur líklega meiri breidd góðra manna. Um Damon þarf ekkert að segja, hann er þegar orðinn “legend” í íslenskum körfubolta. Ed hefur styrkt liðið gríðarlega og skorar yfirleitt um 20 stig og hirðir 12-15 fráköst í leik. Mikið mun mæða á Ed í baráttunni við Friðrik undir körfunum. Síðan eru það skytturnar sem eru fjölmargar. Gaui Skúla fer kannski fremstur í flokki, en auk hans eru Maggi, Gunni Einars og Falur skæðir á stundum. Siðan eru mjög mikilvægir varnarjaxlarnir og baráttuhundarnir Sverrir Þór og Jón Hafsteins, sem eiga það líka til á gúðum dögum að skora slatta. Alls eru þarna hjá Keflavík sex leikmenn sem leikið hafa með ísl. landsliðinu auk Damons sem á væntanlega eftir að gera hið sama við tækifæri. Að lokum má nefna Gunnar Stefánsson og Arnar Freyr Jónsson, sem koma oft skemmtilega inn af bekknum með baráttu og skemmtilegar körfur.

Þessir piltar skora ekki alltaf mikið af stigum en eru þeim mun beittari í vörninni:
 

Sverrir Þór

 

Jonni Hafsteins

Svo er það liðsheildin, en ef hún er borin saman má líklega segja að bæði liðin hafi tiltölulega skýra verkaskiptingu og séu vel skipulögð. Þjálfararnir eru báðir reyndir og hafa báðir verið áður í þessum sporum og kunna að sigra, ef svo má segja, þó reynsla Sigurðar Keflavíkurþjálfara sé öllu meiri.

Eftir alla þess upptalningu telur heimasíðan að í vændum sé stórkostleg skemmtun og mikil spenna. Njarðvíkurliðið hefur stemminguna sín megin en er brothættara, liðið má ekki við öðru en að lykilleikmenn eigi allir toppleik. Keflavík hefur aðeins meiri breidd, en getur þó á stundum dottið niður og leikið slakan sóknarleik. Og þar erum við komnir að aðalatriðinu, að mati heimasíðunnar, sóknarleiknum. Við teljum og vitum að bæði liðin munu leika varnarleik af öllu hjarta og leggja sig fram. Spurningin verður um hvoru liðinu tekst betur að brjóta aftur þennan sterka varnarleik. Líklegt er að það lið sem er í “stuði”, geti keyrt upp hraðann og tekið meiri áhættu. Ef skyttur Keflavíkur ná sér á strik munu Njarðvíkingar ekki ráða við þá. En ef Njarðvík brýtur niður sóknarleik Keflavíkur og hægir á honum, munu Keflvíkingar ekki hafa nægjanlega þolinmæði til að finna góð færi. Við teljum að þetta muni skiptast á og því reiknum við fastlega með því að einvígið fari alla leið og að úrslitin ráðist í oddaleik í Keflavík þar sem heimaliðið, okkar menn, hefur sigur.

Nú er bara að fjölmenna og taka þátt í fjörinu

ÁFRAM KEFLAVÍK!!