Fréttir

Karfa: Konur | 5. mars 2010

Keflavík - Snæfell í kvöld

Fyrsti leikur úrslitakeppni kvenna í Iceland Express-deildinni hefst í kvöld, en þá mæta Snæfellsstúlkur í heimsókn til Keflavíkur. Leikurinn hefst klukkan 19:15 og hvetjum við alla til að láta sjá sig og gera föstudagskvöldið eftirminnilegt.

Stjórn KKDK vill taka fram að Vildarvinakortin sem seld voru fyrr á leiktíðinni gilda ekki á leikinn í kvöld þar sem þetta er leikur í úrslitakeppninni.

Áfram Keflavík!