Keflavík - Stjarnan í kvöld kl. 19.15 / Keflvíkingar komnir þétt upp að veggnum
Keflavík tekur á móti Stjörnunni í þriðja leik liðanna í 8-liða úrslitum Domino´s deildarinnar í kvöld kl. 19.15 í TM-Höllinni. Keflvíkingar verða seint taldir hafa leikið vel í fyrstu tveimur leikjunum. Virðist sem liðið hafi týnt öllu sem einkenndi frábæra spilamennsku liðsins fram að tapinu gegn KR í seinni umferðinni. Leitin af því hefur farið fram síðan á mánudag og í kvöld kemur í ljós hvor leikmenn liðsins séu búnir að finna það aftur.
Keflvíkingar eru hvattir til að fjölmenna á leikinn og gera allt sem í þeirra valdi stendur til að koma í veg fyrir að Keflavík verði sópaðir út úr 8-liða úrslitum en slíkt yrði gríðarlegt áfall. Grillin verða á sínum stað!
Áfram Keflavík