Fréttir

Körfubolti | 24. október 2004

Keflavík- KFÍ 89-80

Keflavík sótti sigur og 2 stig til Ísafjarðar í kvöld. Keflvíkingar náðu strax góðri forustu, 11-27 í fyrsta leikhluta. Staðan í hálfleik var 29-52 fyrir okkar mönnum og í lok 3 leikhluta 47-73. Í síðasta leikhluta slökuðu okkar menn heldur mikið á og lokatölur voru 80-89. Yfirburðir Keflvíkingar voru því meiri en lokatölur gefa til kynna. Keflvíkingar voru þó að tapa of mörgum boltum og skotnýting hefði mátt vera betri. Allir leikmenn fengur þó að spreita sig í þessum leik og það er gott mál. Stigahæstir voru þeir Magnús Gunnarsson með 22 stig, þar af  fimm þrista, Glover með 16 stig og Mathews með 16 stig og 11 fráköst.  Joshua Helm skoraði 37 stig og tók 13 fráköst fyrir heimamenn og áttu Keflvíkingar í mesta basli með að stoppa hann. En í KFÍ eru of fáir leikmenn að skora svo það kom ekki að sök í kvöld. Næsti leikur er svo á móti ÍR á fimmtudaginn kl 19:15 á heimavelli.

                                                

 

                                                    http://www.isisport.is/isi/urslit/kki/2005/00002020/20200401.htm

 

Maggi setti niður 5 þrista.