Keflavík -Njarðvík í Maltbikarnum
Forráðamenn og yfirmenn bikardráttar KKÍ ákvaðu að byrja bikarkeppnina í hvínandi botni með einum stærsta leik ársins í 32. liða úrslitum bikarkeppninnar. Hér er ekki um nein B-lið að ræða, heldur er þetta bara stálhart El-Classico Keflavík gegn Njarðvík í TM höllinni. Leikar hefjast 19:15 en við mælum með að mæta snemma því búist verður við margmenni í húsinu.
Það þarf ekki að hafa neinar áhyggjur af kvöldmatnum, við sjáum um hann með grilluðum hamborgurum fyrir leik á einu besta tilboði bæjarins.