Fréttir

Körfubolti | 3. apríl 2004

Keflavík 1 – Snæfell 1: Heimamenn hertu vörnina og unnu góðan sigur í stórskemmtilegum átakaleik

Sverrir Þór Sverrisson er einn albesti varnarmaður landsins, og þegar hann er kominn í alvöru-varnarstuð þá getur hann gert öllum lífið erfitt. Innkoma Sverris í seinni hálfleiknum kveikti neistann í kvöld. Hann hreinlega tók Corey Dickerson út úr leiknum um hríð og þá náði Keflavík góðri forystu sem dugði til sigurs. Magnús Gunnarsson var einnig frábær á þeim tíma og skoraði grimmt. Forystan varð mest 16 stig en minnkaði niður í sex. Þá tók Keflavík leikhluta og okkar menn skoruðu 7-0 á rúmri mínútu og staðan orðin 98-85. En Snæfellingar neituðu að gefast upp og minnkuðu aftur muninn í fjögur stig skömmu fyrir leikslok með þristum frá Hlyni. En þristur frá Magnúsi og góður varnarleikur tryggðu 6 stig sigur í lokin, 104-98. Staðan orðin 1-1 í einvíginu og spennan í hámarki. Næsti leikur er á mánudaginn kl. 19.15 í Stykkishólmi.

Keflavík byrjaði betur með þá Nick og Derrick í fínu formi. Einnig kom Gunnar sterkur inn og lék vel í vörn og sókn. Keflavík lék svæðisvörn og keyrði upp hraðann, rétt eins og við viljum. En í stöðunni 31-22 tóku Snæfellingar að raða niður þristum, helst Dondrell Whitmore, og leikurinn jafnaðist. Í hálfleik var staðan 47-47.

Þriðji leikhluti var okkar eign og ekki síst sökum stórleiks Sverris og Magnúsar. Í lokaleikhlutanum var hart barist en Keflavík var skrefinu á undan eins og áður er lýst. Skömmu fyrir leikslok átti sér stað afdrifaríkt atriði þegar Arnar Freyr braut ódrengilega á Hlyni með því að kasta í hann boltanum. Hann uppskar réttilega íþróttamannslega villu fyrir brot sitt. En Corey Dickerson lét ekki villuna nægja og réðst að Arnari og var í kjölfarið vikið af leikvelli. Hann mun að öllum líkindum verða dæmdur í leikbann og ef aganefnd starfar hratt þá mun Dickerson taka út bann sitt í næsta leik. Brot Arnars var óþarfi en svar Dickerson var út í hött. Dómararnir brugðust við þessu af sanngirni.

Leikurinn var í heild sinni mjög skemmtilegur og spennandi, mikið skorað og hart barist. Okkar menn voru fetinu framar og sigruðu verðskuldað. Leikmenn voru flestir ágætir, enda skoraði liðið 104 stig sem er eins og við eigum að gera. Jonni átti góða innkomu og var afar öflugur. Nick (26), Derrick (25), Magnús (18) og Fannar (12) skoruðu allir yfir 10 stig og allir þeir 8 leikmenn sem tóku þátt skoruðu. Nick tók auk þess 9 fráköst, gaf 8 stoðsendingar og varði 5 skot, átti fínan leik.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Bæting frá síðasta leik var í fráköstunum en í þetta skiptið unnum við frákastabaráttuna 39-33. Eins voru stoðsendingar okkar manna mun fleiri (31-16), enda er sóknarleikur okkar liðs hreyfanlegri, en hjá Snæfelli er Dickerson með boltann nær allan tímann. Hann er afar öflugur en réð ekki við Sverri, tapaði 10 boltum og tók mótlætinu illa. Varnarleikurinn var fjölbreyttari en síðast og pressuvörn var meira beitt. Það gaf góðan árangur og kláruðust batterí Snæfellinga hraðar en okkar í þessum leik.

Nú er spennan í hámarki og allt stefnir í hörkuleiki í framhaldinu. Fjölmargir Hómarar mættu í Sláturhúsið í kvöld og þökkum við þeim fyrir komuna, þeir hvöttu sína menn vel til dáða, líkt og fleiri hundruð Keflvíkingar í troðfullu húsi, um 1000 manns á staðnum og stemmingin gríðarleg.

Góður leikur strákar.

ÁFRAM KEFLAVÍK!!!