Keflavík 106 - Breiðablik 85: Léttur sigur eftir ágætan fyrri hálfleik
Keflvíkingar mættu grimmir til leiks eftir ósigurinn gegn ÍR í síðustu umferð. Þeir keyrðu strax upp hraðann og náðu þægilegu 12 stiga forskoti strax í fyrsta leikhluta. Keyrslan hélt áfram og ágæt pressuvörn heimamanna orsakaði vandræðagang hjá gestunum sem voru ráðvilltir. Í hálfleik var munurinn 23 stig, 64-41.
En Blikar vildu ekki gefast upp baráttulaust og með Pálma og Mirkó í fararbroddi náðu þeir að minnka muninn í 10 stig. Á sama tíma virtust heimamenn hálf værukærir og botninn datt aðeins úr leik okkar manna. En pressuvörnin var aftur sett í gang í síðasta leikhluta og þá jókst munurinn að nýju og sigur Keflavíkur var aldrei í hættu. Lið Keflavíkur var nokkuð jafnt í leiknum og skoruðu sex leikmenn yfir 10 stig. Gunnar Stefánsson átti sérlega góða innkomu og setti niður 5 þrista í 8 tilraunum. Nick og Derrick létu einnig mikið að sér kveða og hirtu til að mynda bróðurpart frákastanna. Derrick skoraði 24 stig og tók 12 fráköst, og Nick náði þrefaldri tvennu, 17 stig, 11 fráköst og 10 stoðsendingar. Gunni Stef skoraði 17, Hjörtur 14, Maggi og Gunni Einars 13 hvor.
Hjá Breiðablik voru Pálmi og Mirkó allt í öllu, en auk þeirra átti Loftur Einarsson ágæta spretti. Nýji Kaninn þeirra, Cedrick Holmes, fyrrum leikmaður ÍR, var ekki kominn í takt við leik liðsins, enda ekki furða þar sem hann var nýlentur á landinu. En heilt yfir var leikurinn þokkalegur, mikill hraði heimamanna í fyrri hálfleik, en seinni hálfleikur frekar eins og létt skylduæfing.
Næst á dagskrá er stórleikur þegar við höldum til Njarðvíkur á mánudaginn.