Keflavík 108 – Njarðvík 64 - Ótrúlegir yfirburðir Keflavíkur í fyrsta leik liðanna í undanúrslitum
Keflvíkingar voru enn í sama stuðinu í gærkvöldi og s.l. þriðjudag gegn ÍR-ingum, því flugeldasýningin hélt áfram í Sláturhúsinu. Eftir smá þreifingar tóku Keflvíkingar öll völd á vellinum og skoruðu 61 stig gegn 36 í fyrri hálfleik. Njarðvíkingum tókst ekki að komast aftur inn í leikinn því Keflvíkingar mættu enn grimmari í upphafi seinni hálfleiks og hreinlega slátruðu Njarðvíkingum með ótrúlega öflugum varnarleik og fjölbreyttum og beittum sóknarleik. Þriðji leikhluti fór 27-8 fyrir Keflavík og munurinn við upphaf síðasta leikhluta var orðinn 44 stig, 88-44 og þá loks fór að hægjast á leiknum og liðin tóku að skiptast á körfum. Lokastaðan var 108-64 sem er stærsti sigur Keflavíkur á Njarðvík í úrslitakeppni frá upphafi.
En þetta er bara einn sigur og stigaskorið skiptir í raun ekki máli, bara sigurinn. Þrjá sigra þarf til að komast í úrslitin og nú á Keflavík tvo eftir. Með svona spilamennsku eru möguleikar okkar manna vissulega góðir, en kannski má telja hæpið að liðið geti alltaf leikið af þessari getu – að fara fram á slíkt væri ósanngjant. Eins verður að telja líklegt að Njarðvíkingar taki sig saman í andlitinu og láti ekki fara svona illa með sig aftur í bráð.
Munurinn á liðunum í þessum leik var hreint ótrúlegur, á þessu átti enginn von. Keflvíkingar voru baráttuglaðir í vörninni og sóttu grimmt í sóknarfráköstin og náðu alls 15 slíkum í fyrri hálfleik. Þar voru Gunnar Einarsson og Ed Saunders sterkir, en Ed átti frábæran leik í gær, var líklega besti maðurinn í annars jöfnu liði. Hann setti 25 stig og hirti 17 fráköst. Auk þess slökkti hann algerlega í Friðriki Stefánssyni sem sást ekki í leiknum. Sverrir Þór var að vanda stórkostlegur í vörninni og átti stóran þátt í vandræðagangi Njarðvíkinga í sókninni. Reynsluboltarnir Gaui Skúla og Falur Harðar voru afar beittir í sóknarleiknum og skoruðu grimmt. 16 þristar litu dagsins ljós úr 31 tilraun, yfir 50% nýting sem er afar gott.
Damon var frekar slakur framan af en tók til við að skora um leið og hann fór að einbeita sér að leiknum, hann setti alls rúmlega 30 stig í leiknum. Gunni Einars, Jón Hafsteins og Magnús Gunnarsson skiluðu allir góðu dagsverki, Gunni og Jonni hirtu 10 fráköst hvor og Magnús, sem ekki er sérlega hávaxinn, náði þeim skemmtilegra árangri að verja skot undir eigin körfu, hirða boltann og halda honum í leik og leggja hann síðan ofan í körfu andstæðinga örfáum sekúndum síðar - sérlega glæsilegt.
Baráttan var til fyrirmyndar og sóknarleikurinn hraður og fjölbreyttur, mikil samvinna og körfur í öllum regnbogans litum. Ekki var varnarleikurinn síðri og t.d. náðu Keflvíkingar óvenju oft að verja skot andstæðinganna undir körfunum, alls 10 sinnum (þar af átti Ed 5 stykki). Vörn Damons a Harris var mjög góð og einnig höfðu Sverrir og Falur alls kostar við Teiti allan leikinn, sem t.d. tók aðeins eitt 3ja stiga skot allan leikinn.
Njarðvíkingar voru alls ekki líkir sjálfum sér og áttu greinilega ekki von á svona mikilli mótspyrnu. Páll Kristinsson byrjaði reyndar af miklum krafti, en Teitur, Harris og Friðrik komust lítið áleiðis gegn sterkri vörninni. Ragnar Ragnarsson var þeirra stigahæstur með 13 stig.
Nú er staðan 1-0 og liðin mætast aftur í Njarðvík á miðvikudaginn. Gera má ráð fyrir að Njarðvíkingar mæti með öðru hugarfari þá og þurfa Keflvíkingar að búa sig undir mun erfiðari leik.