Fréttir

Körfubolti | 27. mars 2004

Keflavík 2-ÍS 0:Mikilvægur útisigur

Keflavíkurstúlkur byrjuðu leikinn að krafti í dag og það var það sem skyldi liðin af í leikslok

Eins og fyrr segir byrjuðu Keflavíkurstúlkur vel í upphafi leiks náðu góðu forskoti sem þær létu ekki af hendi. Munurinn var 3-10 stig nánast allan fyrri hálfleik. Staðan í leikhléi 36-43 Keflavík í vil. Stúlkurnar náðu að halda uppteknum hætti í síðari hálfleik og létu ekki forystuna af hendi og sigraði verðskuldað 67-77.

Anna María var sem fyrr leiðtoginn á vellinum skoraði 22 stig tók 12 fráköst. Birna skoraði 18 tók 7 fráköst. Svava kom sterk inn í fyrri hálfleik skilaði 12 stigum í hús. Erla Þorsteins var með 9 stig og 10 fráköst. Erla Reynis 9 stig. Rannveig 7 stig og var gíðarlega sterk undir körfunni tók mikilvæg fráköst. Marín stóð vörnina vel. Sem sagt sigur liðsheildarinnar í dag annað skrefið af þrem í átt að titlli fullkomnað.

Þá er bara að fjölmenna á Mánudagskvöld kl 19:15 vonadi að þriðja skrefið verði stigið með trylltum dans.

ÁFRAM KEFLAVÍK