Keflavík 2 – Njarðvík 0: Damon öflugur á lokasprettinum
Ýmislegt var eins og búast mátti við í Njarðvíkum í gærkvöldi. Okkar menn voru ekki alveg komnir niður á jörðina eftir síðasta leik, en heimamenn mættu ákveðnir til leiks, enda þurftu þeir frekar á sigrinum að halda, ef svo má segja. Samt pössuðu okkar menn sig á því að missa Njarðvíkinga aldrei fram úr sér og má þakka það skynsömum sóknarleik, þar sem mikið var leitað inn í teig til Damons og Eds. Svo þegar síðasti leikhluti var um það bil hálfnaður tóku Damon og félagar af skarið og náðu 8 stiga forystu á augabraði sem dugði út leikinn. Lokatölur voru 97-101 og Keflavík er komið með vænlega stöðu í einvíginu. Leikurinn var jafn og spennandi allan tíman og frábær skemmtun fyrir áhorfendur í Ljónagryfjunni sem og þá sem horfðu heima í stofu.
Halldór Karlsson átti sviðið í upphafi leiks og setti 10 stig á fyrstu mínútunum. Eftir það sást lítið til hans en stóru strákarnir Páll og Friðrik voru sterkir í leiknum, sérstaklega undir körfunum. Varnarleikurinn hjá Keflavík var frekar slakur allan leikinn og fengu andstæðingarnir ansi mikið af fríum færum nálægt körfunum, enda var skotnýting þeirra góð, um 58%. 3ja stiga skotin rötuðu hins vegar ekki rétta leið og tóku t.d. Harris og Sigurður samtals 14 slík, en hittu aðeins úr tveimur.
Ekki var sama baráttan í fráköstum hjá Keflavíkurpiltum nú og í síðasta leik og tóku Ed og Damon aðeins um 15 fráköst samtals í stað þeirra 25-30 sem við eigum að venjast frá þeim. Gunnar Einarsson kom hins vegar grimmur inn og hleypti verulegri baráttu í Keflavíkurliðið. Hann tók t.d. fimm sóknarfráköst á stuttum tíma og voru þau verulega mikilvæg.
Leikurinn var gríðarlega jafn og spennandi, og skipust liðin stöðugt á að hafa forystu. Teitur fór að skora meira í síðasta leikhluta, en Gaui Skúla var hins vegar heitur í upphafi og setti 8 stig í fyrsta leikhluta. Njarðvíkingar lögðu mikla áherslu á að stöðva skyttur Keflvíkinga og gáfu þeim lítinn frið utan 3ja stiga línunnar, t.d. tók Gaui einungis fjögur 3ja stiga skot í leiknum og Magnús Gunnarsson aðeins eitt. Hins vegar hittu Damon og Ed vel utan af velli og sömuleiðis Falur sem var sérlega sterkur á lokasprettinum. Hann leitaði að eigin færum en sótti einnig vel inn í vörn Njarðvíkinga og fann Ed ef hjálparvörnin stöðvaði hann. 3ja stiga skotnýting okkar var góð í heildina, 10 af 24 sem er 42%.
Þótt sóknarleikur okkar manna hafi stundum virkað stirður þá brugust drengirnir rétt við vörn Njarðvíkinga og sóttu stíft inn að körfunni. Enda tók það sinn toll af Njarðvíkingum, því Halldór og Friðrik þurftu báðir að yfirgefa völlinn með 5 villur og var það skarð fyrir skildi. Damon og Ed voru mest áberandi í sókninni og skoruðu 70 stig samtals, Damon 43 og Ed 27. Skotnýtingin hjá Ed var frábær og Damon setti niður afar mikilvæg skot þegar á þurfti að halda í lok 3ja og í upphafi 4ða leikhluta. Drengurinn sá sýndi enn og aftur hvers hann er megnugur í alvöru leikjum. Hann skoraði körfur af öllum gerðum og ein var sérlega glæsileg þegar hann hoppaði upp undir körfunni og komst í vandræði en bjargaði sér úr þeim með því að “skófla” boltanum á einhvern ótrúlegan hátt úr mjaðmarhæð, nánast aftur fyrir sig, og ofan í körfuna.
Dómarar leiksins, Helgi Bragason og Rögnvaldur Hreiðarson, voru frekar slakir þennan daginn og fannst stuðningsmönnum beggja félaga sem á þá væri hallað. Þannig má kannski segja að dómarnir hafi ekki bitnað á öðru félaginu frekar en hinu. Þó litu nokkrir skrýtnir dómar dagsins ljós og töluvert ósamræmi var í dómgæslunni, t.d. var stundum dæmt á minnstu snertingu úti á velli, en grófum ruðningum, peysutogum og hoppum yfir bakið sleppt undir körfunum. Mikilvægt er í leikjum sem þessum að dómararnir finni sér “ákveðna línu” þannig að menn inni á vellinum viti hvernig þeir geti hagað sér.
Síðustu mínúturnar voru spennandi þótt Keflavík hafi haft nokkuð örugga forystu á lokasprettinum. Heilt yfir má segja að Keflvíkingar hafi unnið á skynsömum sóknarleik þar sem þeir nýttu sér styrk Eds og Damons undir körfunum, þrátt fyrir að varnarleikurinn og fráköstin hafi verið með slakara móti í þetta skiptið. Sigurður þjálfari beitti ýmsum varnarafbrigðum, maður gegn manni, svæðisvörn og blandi af hvoru tveggja, en ef baráttuandinn er ekki 100% til staðar, þá verður vörnin aldrei pottþétt, sama hvaða aðferð er notuð.
En leikurinn vannst og nú er Keflavík komið í vænlega stöðu, 2-0 gegn Njarðvík í undanúrslitum. Við höfum þrjú tækifæri til að landa síðasta sigrinum, en vissulega væri ljúft ef það tækist á föstudaginn! ÁFRAM KEFLAVÍK!