Keflavík 3 – Snæfell 1: Leiktíðinni lauk með öruggum sigri í Sláturhúsinu
Það fór eins og margir höfðu spáð, Keflvíkingar voru sterkara liðið í einvíginu og kláruðu málin í Sláturhúsinu í gær. Gestirnir sem farið höfðu taplausir í gegnum Hamar og Njarðvík áttu ekki svar við góðum varnarleik Keflvíkinga í tveimur síðustu leikjunum. Keflvíkingar héldu Snæfelli í 65 og 67 stigum í lokaleikjunum og dugði það tveggja öruggra sigra. Lokastaðan í gær var 87-67.
Á upphafsmínútum var nokkuð um stress meðal leikmanna og lítið gekk í sóknarleik liðanna. En Magnús braut ísinn og skellti niður þristi og Keflavík náði forystu 15-10. Staðan eftir fyrsta leikhluta var síðan 20-15.
Í öðrum leikhluta kom verulega góður kafli hjá Keflavík þar sem vörnin skellti í lás. Snæfellingar sem léku án Dickerson, komust hvorki lönd né strönd, og í lok leikhlutans komust gestirnir ekki yfir miðju nokkur skipti í röð. Munurinn óx og Hjörtur stráði salti í sárin með því að stela boltanum og negla niður þristi á lokasekúndum fyrri hálfleiks, en eftir það var staðan 43-25. Gunnar Einarsson átti verulega góða innkomu og skoraði 9 stig í leikhlutanum.
Stemmingin var góð meða Keflvíkinga og Snæfellingar hvöttu sína menn duglega, þrátt fyrir brösótt gengi. Áhorfendur voru um 1250 og heyrðist vel í þeim allan tímann, sannkölluð úrslitastemming.
Seinni hálfleikur hófst með miklu basli hjá báðum liðum, mikið var um mistök og hittnin léleg. En forystan hélst og við upphaf síðasta leikhlutans var staðan 58-42. Þá hresstust bæði liðin og hraðin jókst. Munurinn var hins vegar nokkuð stöðugur og sigur Keflvíkinga í raun aldrei í hættu. Engu líkara var en að allir í húsinu væru að bíða eftir því að leikurinn kláraðist. Gunnar Stefánsson átti skemmtilega innkomu í lokin og setti 8 stig á þremur mínútum. Í lokin var munurinn 20 stig, 87-67, og Íslandsmeistaratitillinn í höfn.
Mikil gleði braust út meðal leikmanna og stuðningsmanna í leikslok, enda fyllsta ástæða til.
Flestir leikmanna léku vel í vörninni, en sóknin var rokkandi. Derrick var frábær að vanda, skoraði jafnt og þétt, alls 26 stig og hirti 13 fráköst. Fannar var sterkur í baráttunni við Hlyn, tók m.a. 11 fráköst. Gunnar og Magnús voru öflugir í sókninni, skoruðu báðir 14 stig og hittu vel. Sverrir átti flottan leik sem leikstjórnandi og gaf 10 stoðsendingar. Hjörtur kom öflugur inn og lék af reynslu. Jonni átti frábæra innkomu, varði skot, fiskaði ruðninga og hirti fráköst, þótt hann hafi verið full rólegur í sókninni. Nick var öflugur og setti m.a. niður tvo þrista sem gerðu endanlega út um leikinn í upphafi fjórða leikhluta. Nick hitti hins vegar ekki vel. Gunni og Halldór komu inn í lokin og náði Gunni að nýta tímann sérlega vel.
Hjá Snæfelli var Whitmore atkvæðamestur, en auk hans voru Sigurður og Hlynur ágætir. Samt var sóknarleikur Snæfellinga afar stirður, rétt eins og í þriðja leiknum. Þeir söknuðu greinilega Dickersons, en samt má segja að útslit einvígisins hafi ráðist í þriðja leiknum í Hólminum á mánudaginn síðasta. Í lokin játuðu þeir sigraða og kláruðu leikinn með sæmd.
Rétt er að hrósa Snæfellingum fyrir þeirra framgöngu, enda í fyrsta sinn sem þeir leika til úrslita um Íslandsbikarinn. Áhorfendur þeirra voru skemmtilegir og háværir og liðið lék prýðilegan körfubolta, barðist vel og menn lögðu sig fram. Til hamingju með árangurinn Snæfellingar og takk fyrir keppnina.
Keflvíkingar náðu markmiði sínu, að verja Íslandsmeistaratitilinn. Frábær árangur hjá frábæru liði. Mikið hefur gengið á í vetur, en Keflavík hefur haldið fast við sitt, ekki breytt liðinu og ekki bætt við erlendum leikmönnum. Endurkoma Fannars hafði og góð áhrif á liðið, þótt hann hafi verið frá vegna meiðsla fyrsta mánuðinn. Guðjón og Falur hafa lagt mikið upp úr stöðugleika og liðsheild og má færa rök fyrir því að það hafi verið breiddin, liðsheildin og sigurviljinn sem gert hafi útslagið í baráttunni um Íslandsbikarinn. Leiktíðin hefur verið löng og ströng og árangurinn glæsilegur. Meira um það síðar.
Til hamingju piltar!