Fréttir

Körfubolti | 4. janúar 2004

Keflavík 70 - Grindavík 50. Ágæt byrjun á árinu hjá stúlkunum

Keflavíkurstúlkur hófu árið með öruggum sigri gegn Grindavík, 70-50. Keflavík byrjaði vel og leiddi 20-11 og síðan 37-18 í hálfleik. Seinni hálfleikurinn var slakur hjá stúlkunum en forskotið hélst og tuttugu stiga auðveldur sigur var staðreynd.

Grindavík telfdi fram nýjum bandarískum leikmanni, Kesha Tardy, en hún lenti á Íslandi rétt fyrir leik og hafði því ekki tök á að æfa með liðinu fyrir leikinn. Stúlkan skoraði samt 16 stig, hún er hávaxin og mun styrkja Grindavík verulega í vetur.

Keflavíkurliðið virkaði sprækt framan af en sundurlaust í seinni hálfleik. Anna María átti enn og aftur góðan leik og var best Keflavíkukvenna, skoraði 14, tók 11 fráköst og gaf 6 stoðsendingar. Erla var í rólegri kantinum, enda í villuvandræðum. Allar stúlkurnar náðu að skora og dreifðist skorið í þetta skiptið jafnt á milli leikmanna, aðeins Anna og Erla (10) skoruðu yfir 10 stig. Næsta helgi verður annasöm hjá stúlkunum, þær halda til Akureyrar og leika gegn Þór í Bikarnum á laugardag og síðan er leikur gegn ÍR á sunnudag.

Hér má sjá tölur úr leiknum.