Fréttir

Körfubolti | 22. desember 2003

Keflavík 93 - Haukar 78. Slakur leikur, en mikilvægur sigur

Það var ekki mikil reisn yfir Keflavíkurliðinu í kvöld þegar Portúgalsfararnir mættu Haukum í síðasta deildarleiknum á þessu ári. Leikmenn náðu ekki upp baráttu og einbeiting og því héldu Haukarnir í við okkar menn til að byrja með. Magnús átti ævintýralega flautukörfu í lok fyrri hálfleiks sem tryggði okkur 3ja stiga forystu í hléi, 44-41.

Einhvern veginn fannst manni þó að ekki þyrfti nema smá áhlaup hjá okkar mönnum og þá myndum við ná tökum á leiknum. Og einmitt það gerðist. Tveir góðir sprettir, 9-0 í 3ja leikhluta og 14-2 í þeim fjórða byggðu upp forskot sem mest varð 24 stig í stöðunni 91-67 þegar um fimm mínútur lifðu leiks. En Manciel þeirra Haukamanna var drjúgur við stigaskorun í kvöld og bætti við þremur þristum á loka mínútunum og þeir löguðu stöðuna aðeins. Í lokin var munurinn 15 stig, 93-78, og öruggur sigur heimamanna var staðreynd.

Nick Bradford dró vagninn í þessum leik og lék á alls oddi. Hann skoraði mikið, 28 stig, tók 10 fráköst og gaf auk þess 8 stoðsendingar. Einnig voru Jonni og Gunni Einars sterkir, Jonni skoraði 10 og varði m.a. 3 skot, og Gunni setti 19 stig og hitti afar vel úr 3ja stiga skotum sínum, 4 fóru ofaní körfuna af 5 tilraunum. Derrick var sprækur að vanda, en lék minna með en oft áður sökum villuvandræða, bara 22 mínútur í þetta skiptið, en hann setti 17 stig og tók 7 fráköst. Annars var athyglisvert að Keflavíkurliðið varði alls 9 skot í leiknum sem er langt yfir meðaltali. Aðrir leikmenn voru ekki í miklu stuði í kvöld og baráttan hefur oft verið meiri. Magnús átti þó þrjá góða þrista, en hefur oft verið einbeittari. Það er þó sumpart skiljanlegt í ljósi erfiðra leikja og ferðalaga að undanförnu. En Nick sýndi leiðtogahæfileika í kvöld og var öflugur í vörn og sókn.

Haukarnir byggðu leik sinn á Michael Manciel sem var illviðráðanlegur og gerði 44 stig. En það kom þó ekki að sök því hinir gerðu lítið. Því var sigurinn aldrei í hættu eftir að Keflavík hafði náð 10 stig forskoti í byrjun seinni hálfleiks.

Nú er kærkomið jólafrí á næstunni og munu drengirnir hvíla lúin bein. Eftir jól heldur fjörið áfram og eins og fyrr verður aðal áherslan lögð á Evrópukeppnina til að byrja með. En auk hennar munum við reyna að komast eins langt og mögulegt er í Bikarnum. Deildin mallar svona með en við reynum að halda okkur við toppinn og setjum stefnuna á 2. sætið.

Gleðileg jól!