Keflavík á sporið á ný þegar þær sigruðu Njarðvík 102-85
Keflavíkurstúlkur sigruðu granna sína úr Njarðvík í kvöld 102-85 eftir að hafa leitt með 19 stigum í hálfleik. Það má segja að Keflavík hafi lagt grunninn að sigrinum í fyrri hálfleik því þær gerðu það sem þeim er einum lagið, þ.e að keyra upp hraðann. Alex Stewart nýji leikmaður þeirra sem kom með flugi í morgun stóð sig með prýði í leiknum og var ekki að sjá á henni að hún væri þreytt eftir flugið. Hún spilaði í 38 mín. af 40 í leiknum og stjórnaði leiknum mjög vel og virðist hafa gott auga fyrir samleik. Hún skoraði 19 stig og leitaði samherja sína uppi og mataði þær af sendingum, var með 9 stoðsendingar í leiknum.
Aðrir mátastólpar í liðinu fóru aftur í gang og reyndar allt liðið í heild og virðist sem nýji leikmaðurinn hafi góð áhrif á allt liðið. Anna María átti mjög góðan leik, skoraði 18 stig og tók 8 fráköst. Bryndís Guðmunds skoraði 20 stig og var stighæst og það var athyglisvert að hún skorði 2 þriggja stigakörfur úr 2 tilraunum, mjög gott af miðherja! Birna Valgarðs skilaði sínu eins og alltaf skoraði 17 stig, þó hún mæti bæta vítin sín. Rannveig spilaði af miklum krafti í kvöld, skoraði 9 stig og var með 7 stoðsendingar.
Í stuttu máli góður leikur og skemmtilegur á að horfa enda mikið skorað. Sóknalega var liðið að spila frábærlega en vörnin er eitthvað sem þarf að bæta og það kemur í næsta leik. Alex á eftir að komast betur inn í leik liðsins og þá er liðið aftur orðið eins og við viljum hafa það. Mikilvægur sigur í höfn og næst er að einbeita sér að næsta leik og þar eiga þær harma að hefna þegar þær mæta Haukum að Ásvöllum fimmtudaginn 17 febrúar.
Tölfræði úr leiknum.
