Keflavík áfram í bikarnum eftir auðveldan sigur gegn Snæfelli, 102-86
Keflvíkingar mættu einbeittir til leiks í kvöld í bikarkeppninni, enda eru allir bikarleikir úrslitaleikir. Strax í upphafi kom í ljós að leikmenn voru klárir í slaginn, Maggi og Gunni dúndruðu niður þristum og krafturinn var mikill í vörninni. Eftir fimm mínútur var staðan orðin 20-10 og segja má að Keflvíkingar hafi ekki litið um öxl eftir það. Forystan sveiflaðist til og frá, í kringum 15 stign allan leikinn, var mest 23 stig (72-49) og minnst 9 stig (78-69) en í lokin var hún 16 stig og lokatölur voru 102-86.
Maggi fór á kostum í leiknum, sérstaklega í seinni hálfleik þegar hann skoraði körfur í öllum regnbogans litum, en alls gerði hann 27 stig í leiknum. Sverrir Þór átti einnig stórleik, hinu megin á vellinum, og tók bakvörðin knáa, Pierre Green, nánast úr leiknum á löngum stundum, auk þess sem hann gaf 8 stoðsendingar. Glover var öflugur með 24 stig og Nick var lifandi og lék vel fyrir liðið þrátt fyrir að hafa ekki skorað mikið. Hann gerði 11 stig, tók 13 fráköst og gaf 8 stoðsendingar.
Gunni byrjaði af miklum krafti en hægði á sér í seinni hálfleik, skoraði 15 stig og lék fína vörn. Arnar átti flottar körfur og Elentínus átti enn eina flotta innkomu, jafnvel hans bestu. Hann skoraði 9 stig og tók 3 fráköst á þeim 10 mín sem hann lék. Gunni Stef og Halldór settu niður sitt skotið hvor, en Hjörtur hafði hægt um sig og Davíð kom ekki við sögu.
Hjá Snæfelli voru Hlynur (15 st / 17 fr), Poeples (27/13) og Siggi Þorvalds (18/7-ótrúlegur í horninu) allir góðir, ekki síst í fráköstum, en Snæfellingar tóku alls 21 sóknarfrákast, þar af tók Hlynur 9. En þeir lentu undir strax í byrjun og náðu aldrei almennilega að ógna Keflavíkurhraðlestinni í þetta skiptið.
Hjá Snæfelli hvíldi Magni vegna launaþaksmála, en hjá Keflavík hvíldi Jonni vegna meiðsla, ef undan eru skildar 28 sek. í fyrri hálfleik. Jonni fékk smá bakslag í hnéð eftir leikinn gegn Reims í Frakklandi, en er aftur á batavegi.
Þarna kannaðist maður við Keflavíkurliðið, það var "evrópubragur" á því fyrstu mínúturnar og því ekki að sökum að spyrja. Þegar einbeiting og grimmd eru til staðar, þá er okkar lið erfitt við að eiga, sérstaklega í Sláturhúsinu.
Með þessum sigri tryggðum við okkur þátttökurétt í 16 liða úrslitum bikarsins, en dregið verður um mótherja á næstu dögum.