Keflavík áfram í Lýsingarbikar og ljóst hvaða lið verða í pottinum
Keflavík tryggði sér áframhaldandi veru í Lýsingarbikarnum eftir 11. stiga sigur á Tindastól, 94-105. Strákarnir verða því í pottinum rétt eins og kvennaliðið þegar dregið verður á miðvikudaginn í 8. liða úrslitum.
Nokkuð jafnræði var með liðunum í leiknum en Keflavík hafði þó alltaf frumkvæðið. Staðan í hálfleik var 50-54 og eftir þriðja leikhluta 73-80.
Jón Norðdal Hafsteinsson átti stórleik og var með 24. stig, skotnýting 11/11 og 5. fráköst. B.A. Walker var þó stigahæstur með 28 stig og 7. stoðsendingar. Tommy var með 17. stig, Maggi 15. stig og Anthony Susjnara 11. stig
KR er komið áfram eftir nauman sigur á Grindavík, 104-103.
Njarðvík sigraði Stjörnuna og ÍR vann Hamar í Hveragerði.
Liðin í 8.liða úrslitum
Keflavík
Njarðvík
KR
ÍR
Þór Þorlákshöfn
Fjölnir
Snæfell
Skallgrímur
Jonni átti góðan leik í kvöld
Tindastóll og Keflavík mættust á sunnudag í annað sinn á stuttum tíma, að þessu sinni í Lýsingarbikar KKÍ. Leikið var á Króknum eins og síðast. Örlitlar breytingar voru á liðunum síðan síðast. Philip Perry nýr leikmaður Tindastóls lék fyrsta leik sinn fyrir heimamenn og Magnús Gunnarsson var kominn úr fríi og var mættur í Keflavíkurbúninginn. Þá var Kristinn Friðriksson þjálfari Stólanna borgaralega klæddur og þar af leiðandi ekki í leikmannahópi Tindastóls.
Byrjunarlið Keflavíkur var Jón, Maggi, Antony, Tommy og B.A. Fyrir heimamenn byrjuðu Donald, Samir, Svavar, Ísak og Serge.
Leikurinn var jafn fyrstu mínútuna, en þá settu Keflvíkingar í gírinn ásamt því að Tindastóll spilaði litla sem enga vörn og staðan fór úr 4-5 í 6-18. Kiddi tók þá leikhlé til að vekja sína menn, en það hafði ekki áhrif strax og tveir þristar frá Keflavík breyttu stöðunni í 8-24 og fjórar mínútur eftir af leikhlutanum og jarðarför virtist vera í uppsiglingu. Þá loksins kviknaði líf meðal heimamanna og fjórir þristar lágu fram að 2. leikhluta ásamt því að vörnin fór í gang. Munurinn fór niður í 6 stig í lok leikhlutans 24-30, en Ísak átti frábæran sprett fyrir Tindastól í lokin.
Maggi Gunn ætlaði greinilega að vinna upp fríið og setti þrjá þrista í fyrsta leikhlutanum fyrir Keflavík, en hinum megin var Ísak kominn með 8 stig. Stólarnir héldu áfram að saxa á forskotið í öðrum leikhluta og náðu muninum niður í tvö stig 36-38. Þá svaraði Maggi með þristi og svo öðrum eftir að Samir setti niður þriggja stiga skot. Munurinn hélst svo 3-6 stig fram að hléi og staðan í hálfleik var 50-54 eftir að Þröstur skoraði síðustu körfu hálfleiksins fyrir Keflavík.
Stigaskor Tindastóls skiptist jafnt á milli manna í fyrri hálfleik og enginn var kominn yfir 10 stig í hálfleiknum. Hjá Keflavík var Magnús með 15 stig, öll í þriggja stiga skotum og Jón Norðdal var með 14. Serge Poppe meiddist í fyrrihálfleik, fékk olnbogaskot í andlitið svo skurður kom á efri vör. Það var rennt með hann á sjúkrahúsið, hann saumaður og var hann mættur til leiks í fjórða leikhluta.
Keflavík byrjaði þriðja leikhlutann á svipuðum nótum og þeir byrjuðu leikinn og eftir tvær mínútur var staðan orðin 54-67 og munurinn 13 stig. Þá duttu Stólarnir aftur í gang og skoruðu 9 stig í röð. Eftir það var leikurinn í jafnvægi allt þar til á síðustu mínútu leikhlutans að Keflavík skoraði fimm stig í röð og kom muninum í 7 stig fyrir 4. leikhlutann, staðan 73-80.
Í byrjun fjórða fjórðungs fór allt í handaskolur hjá Stólunum, þeir fengu dæmdar á sig tvær tæknivillur á stuttum tíma eftir þeir voru ekki sáttir með dómara leiksins. Þeim til afsökunar þá misstu dómarnir svolítið tökin á leiknum í fjórða leikhlutanum eftir þokkalegustu dómgæslu þangað til, en samt var óþarfi að fá dæmdar á sig þessar tæknivillur. Þó að Keflvíkingar hittu aðeins úr tveimur af fjórum vítaskotum sem þeir fengu þá fór munurinn í 11 stig, 75-86 með körfu frá Walker. Munur sem Tindastóll náði aldrei að brúa það sem eftir lifði leiks.
Að lokum unnu Keflvíkingar ellefu stiga sigur 94-105. Bestur og stigahæstur Tindastólsmanna var að þessu sinni Ísak, Helgi Rafn kom sterkur inn í leikinn með mikilli baráttu að vanda og Samir var öflugur, sérstaklega í fyrri hálfleik. Svavar og Serge áttu þokkalegan leik, en nýi maður Philip Perry náði sér ekki strik og hékk stundum full mikið á boltanum. Jón Norðdal bar af í liði Keflavíkur og síðan átti B.A. Walker fínan síðari hálfleik eftir rólegan fyrri.
Stigahæstir Tindastóls voru Ísak með 19 stig og Donald með 18. Fyrir Keflavíkskoraði B.A. Walker 28, en næstur kom Jón Norðdal með 24.
Stigaskor Tindastóls: Ísak 19, Donald 18, Svavar 16, Samir 12, Serge 11, Philip 10 og Helgi Rafn 8. Samir var með 10 stoðsendingar og Serge atkvæðamestur í fráköstunum með 6.
Keflavík: Walker 28 stig, Jón 24, Tommy 17, Magnús 15, Anthony 11, Arnar 4 og Gunnar, Þröstur og Sigurður Þorsteinsson með 2 stig hver.
Dómar leiksins voru þeir "bræður" Rögnvaldur Hreiðarsson og Davíð K. Hreiðarsson. Áttu lengst af þokkalegasta leik, en misstu soldið dampinn undir lokin og fannst heimamönnum halla verulega á sig á því tímabili.
www.tindstoll.is