Fréttir

Körfubolti | 29. mars 2003

Keflavík aftur spáð ósigri

Í dag kl. 17.30 hefjast úrslitin í kvennakörfunni þegar KR mætir til Keflavíkur. Ívar Ásgrímsson þjálfari Bikarmeistara ÍS telur KR-liðið sterkara og spáir þeim 3-2 sigri.

Heimasíðan er ekki á sama máli, en eins og sást hjá strákunum, þá skipta spárnar ekki öllu máli. Þjálfararnir Ingi (KR), Eggert (ÍR) og Bárður (Snæfelli) voru allir á því að Njarðvík myndi vinna Keflavík í undanúrslitunum, og segja má því að Keflavíkurliðið hafi komið verulega á óvart.

En þetta sýnir kannski hve merkileg íþrótt körfuboltinn er, meira að segja helstu "sérfræðingar" hafa ekki hugmynd um hvað er í vændum. Við vonumst vitanlega eftir því að Ívar hafi líka rangt fyrir sér . . . : )