Keflavik beið ósigur í fyrsta leik á Norðurlandamóti meistaraliða í Osló
Keflavík lék sinn fyrsta leik í dag á Nordic Challence gegn heimamönnum í Bærum Verk Jets. Magnús Gunnarsson byrjaði með látum og smellti niður þristum í annars bragðdaufum fyrri hálfleik. Lítið var skorað og staðan var 30-24 fyrir Keflavík í hálfleik. Í þeim seinni jókst hraðinn töluvert, en okkar menn náðu ekki að leika eins og smurð vél, enda fyrsti leikurinn þar sem allir leikmenn taka þátt. Gunnar Einarsson tók við af Magnúsi og hélt hittninni gangandi í seinni hálfleik. En Bærum náði forskotinu og þegar 10 sek voru eftir af leiknum þá leiddu Norðmennirnir með tveimur stigum, 75-73 og Keflavík átti boltann. Anthony Glover fékk knöttinn í teignum en hann náði ekki að setjann oní. Norsararnir brunuðu upp völlinn og skoruðu tvö síðustu stigin, þannig að lokastaðan var 77-73.
Ekki er heimasíða mótsins farin að virka eins og til stendur og því er ekki hægt að nálgast tölfræðina líkt og við vildum. En stigin skoruðu Magnús 15, Glover 14, Gunnar E 11, Arnar Freyr 7, Jón Nordal 6, Jimmy Miggins 6, Hjörtur 5, Gunnar Stef, Davíð, Halldór og Elentínus 2 stig hver.
Sigurður þjálfari sagði að liðið hefði einfaldlega leikið illa. Það hefðu komið nokkrir ágætir sprettir en heilt yfir hefði leikur liðsins verið slakur. Glover var þokkalegur og Maggi og Gunni áttu spretti í sókninni. Jonni lék vel, þó hann skoraði ekki mikið. Miggins hefur ekki enn náð að sýna sínar réttu hliðar og var slakur.
Á eftir þessum leik tóku finnsku meistararnir Kouvot sænsku höfrungana í Norröping Dolphins í kennslustund og unnu 30 stiga stórsigur. Keflavík leikur á morgun við þá finnsku og verður þar við ramman reip að draga. Vonandi verður þó stígandi í leik liðsins eftir þetta slaka upphaf.