Fréttir

Körfubolti | 17. júní 2004

Keflavík boðið á meistaramót félagsliða á Norðurlöndum

Til stendur að halda í fyrsta skiptið meistaramót Norðurlanda fyrir félagslið nú í haust. Rætt hefur verið um þetta mót á undanförnum árum og eru það Norðmenn sem hafa frumkvæðið að mótinu. Til stendur að mótið verði í Osló helgina 24. - 27. september.

Keflvíkingar eru spenntir fyrir þátttökunni og fagna tækifærinu til að bera sig saman við bestu félagslið Norðurlanda. Boð um þátttöku barst nú í vikunni þannig að ekki er enn ljóst hvernig skipulag mótsins verður. Ljóst er þó að hvert lið mun leika einn leik á dag, líklega í þrjá daga.

Öll meistaraliðin hafa tekið vel í hugmynd Norsaranna, nema SK Arhus frá Danmörku, þar sem þeir höfðu þegar skipulagt hraðmót hjá sér um sömu helgi og hafa ekki tekið ákvörðun um hvað þeir gera. Meistarar Norðurlanda eru sem hér segir:

Frá Noregi: Bærums Verk Jets
Frá Svíþjóð: Plannja Basket
Frá Danmörku: SK Arhus (í stað þeirra gæti komið lið nr. 2 sem er Horsens IC)
Frá Finnlandi: Konvot
Frá Íslandi: Keflavík

Þetta er spennandi verkefni og vonandi kemst þessi meistarakeppni á koppinn og verður fastur liður í körfuboltanum á Norðurlöndum á næstu árum.

Lesa má um mótið á heimasíðu körfuboltasambandsins í Noregi: http://www.bl.no/t2.asp?p=35444&x=1&a=101994.