Keflavík burstaði KR í toppslagnum í gær, 104-76
Körfuboltinn er ótrúleg íþrótt. Grindavík átti stórleik fyrir viku og lagði Keflavík með um 10 stigum í hörkuleik. Síðan töpuðu Grindvíkingar stórt fyrir KR. Og í gærkvöldi voru KR-ingar eins og byrjendur í höndunum á frískum Keflvíkingum.
Byrjunin í leiknum í gær var eins og flugeldasýning hjá Keflavík. Strákarnir voru greinilega mjög mótiveraðir og mættu til leiks með því hugarfari að berjast af alefli. Enda var varnarleikurinn all svakalegur og KR-ingar áttu engin svör. Menn vissu að þótt KR hafi öflugt lið þá eru þeir ekki sterkir í bakvarðastöðum og Keflavík nýtti þá veikleika til fullnustu. Mikil pressa var sett á leikmenn KR sem réðu ekki neitt við neitt og komust varla yfir miðju. Afleiðingin var að Sverrir Þór og félagar stálu boltum í gríð og erg af KR-ingum og fengu í kjölfarið mýmörg opin tækifæri. Auk þess var vörnin undir körfunni afar sterk og m.a. varði Ed Saunders skot frá Darryl Flake í tvígang með tilþrifum.
Eftir fyrsta leikhluta var staðan 32-11 og KR-ingar voru bugaðir. Áfram hélt pressan og við bættust langskot Guðjóns Skúlasonar sem fann fjölina sína á ný í DHL-höllinni í gær og smellti sex þristum úr átta tilraunum í leiknum. Í hálfleik var staðan 20-50 og úrslitin í raun ráðin. Seinni hálfleikur var nánast formsatriði þrátt fyrir að KR-ingar reyndu að byrja af krafti. Getumunurinn var einfaldlega of mikill í þetta skiptið og niðurstaðan var tæplega 30 stiga útisigur, 76-104.
Allt Keflavíkurliðið lék vel í þessum leik og enginn betri en Ed sem fór á kostum og átti sinn besta leik frá því að hann kom til liðsins. Drengurinn setti 23 stig, hirti 15 fráköst og spilaði glimrandi vörn. Enda skoraði hinn annars stórgóði Flake aðeins 4 stig í fyrri hálfleik og var nánast ekki með í leiknum fyrr en á lokamínútunum þegar ekkert skipti lengur máli.
Damon lék vel að vanda og það sama má segja um allt liðið, sérstaklega hvað varnarleikinn varðar, en úrslitin réðust í raun strax í byrjun þegar KR brotnaði gegn pressuvörninni.
Nú höfum við náð öðru sætinu, í bili að minnsta kosti, og það er í okkar valdi að halda því. Ef næstu þrír leikir vinnast (gegn ÍR, Breiðabliki og Snæfelli) þá endum við að öllum líkindum í öðru sætinu, ef ekkert stórkostlega óvænt gerist hjá hinum liðunum.
Næst á dagskrá er ÍR, eftir viku, og þar eigum við harma að hefna úr fyrri umferðinni, þar sem liðið lék líklega sinn lélegasta leik vetrarins.
Áfram Keflavík!