Fréttir

Körfubolti | 8. febrúar 2004

Keflavík er Bikarmeistari karla 2004 eftir sannfærandi sigur á Njarðvíkingum

Mikil spenna hafði byggst upp fyrir leikinn í gær, ekki síst þar sem mönnum hafði orðið tíðrætt um meiðsli lykilmanna og nýjan Kana hjá Njarðvík. Okkar menn höfði hins vegar undirbúið sig af kostgæfni í rólegheitum og voru greinilega vel samstilltir, klárir í slaginn. Og til að gera langa sögu stutta þá tóku Keflvíkingar fljótlega forystu í leiknum og voru klárlega betri alveg til leiksloka. Niðurstaðan var öruggur stórsigur, 93-74, mesti munur sem hefur verið á þessum félögum í bikarúrslitum. Keflavík hefur nú unnið bikarinn tvö ár í röð, en það gerðist síðast fyrir 10 árum og það voru einmitt Keflvíkingar sem það gerðu.

Nýji Kaninn hjá Njarðvík, Larry Bratcher, hóf leikinn af krafti og skoraði þrár fyrstu körfur Njarðvíkinga og staðan orðin 6-2 þeim í vil. Eftir þessa góðu byrjun sást ekki meira til þessa manns og gerði hann aðeins tvö stig í viðbót, bæði úr vítum, og endaði með 8 stig. Eftir þessa byrjun tóku Keflvíkingar við sér og léku flottan bolta. Hraðinn og krafturinn voru allsráðandi. Njarðvíkingar komust ekkert áleiðis gegn grimmri vörninni og réðu ekki við fjölbreyttan sóknarleikinn. Arnar Freyr Jónsson átti frábæra kafla strax í byrjun, með hraða sínum og leikni tókst honum að splundra vörn Njarðvíkinga og opna hana upp á gátt. Hann skoraði grimmt og var auk þess duglegur að finna samherja sína þegar vörnin riðlaðist. Arnar skoraði 9 stig í fyrsta leikhlutanum og endaði með 20 slík, 9 stoðsendingar og 5 stolna bolta. Hann byrjaði vel og átti hreint úr sagt stórkostlegan leik. Launaði traustið sem þjálfararnir sýndu honum með því að láta hann byrja inná í svona stórleik.

Eftir 1. leikhluta var munurinn 14 stig, 31-17. Njarðvík náði að minnka muninn í þeim næsta, helst fyrir samvinnu þeirra Brentons og Friðriks, sem voru allt í öllu hjá Njarðvík. Í hálfleik var munurinn 7 stig, 47-40 fyrir Kef. Hjá okkur áttu Magnús og Halldór skemmtilegar innkomur og smelltu niður þristum. Annars var liðið vel skipulagt og þeir félagar Nick og Derrick stóðu sig vel þótt Derrick ætti fullt í fangi með Friðrik. En Friðrik réð engan veginn við Derrick sem skoraði alls 29 stig í leiknum og hirti 20 fráköst, þar af 6 í sókn. Enn einn stórleikurinn hjá þessum geðþekka baráttujaxli.

Hjörtur, Sverrir, Gunni og Jonni stóðu sig allir vel, ekki síst í varnarleiknum. Brandon var algerlega klipptur úr leiknum, einu vandræðin voru að stöðva Brenton og Friðrik, en Brenton er sérlega laginn við að fiska villur. Fljótlega í byrjun seinni hálfleiks herti Keflavík tökin og munurinn jókst í 10-15 stig og hélst þar reyndar út leikinn. Við byrjun síðasta leikhluta var staðan 74-60 fyrir Keflavík. Njarðvíkingar náðu ekki að gera alvöru atlögu að forskotinu og gáfust fljótlega upp. Þegar Brenton og Friðrik fóru að þreytast var fátt um fína drætti, reyndar barðist Halldór vel og Ragnar setti niður tvo þrista, en það var ekki nóg til að ógna Keflvíkingum sem voru í banastuði nánast allan seinni hálfleikinn. Í lokin var munurinn 19 stig og lokastaðan 93-74. Öruggur og sannfærandi sigur.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Derrick og Arnar voru menn leiksins, Derrick ódrepandi duglegur og eitraður í stökkskotunum, Arnar fljótur og ógnandi, með mikinn hraða og auga fyrir spili. Nick átti einnig flotta spretti, stal t.d. boltanum nokkrum sinnum á skemmtilegan hátt og er einkar leikinn í opnum og hröðum leik, auk þess setti hann niður tvo þrista á góðum augnablikum. Allir leikmenn komust vel frá leiknum, eins og áður sagði, og liðið lék á alls oddi. Þjálfararnir, Falur og Guðjón, höfðu greinilega undirbúið liðið vel og hittu naglann á höfuðið með því að láta Arnar axla mikla ábyrgð. Arnar þarf nú að halda sér á jörðinni, eins og stundum er sagt, og stefna á að standa sig vel í Íslandsmótinu í kjölfarið.

Glæsilegum leik lauk með “We are the Champions” eins og venjulega í Höllinni og voru Keflvíkingar sérlega kátir í leikslok. Frábær leikur og frábær sigur, sá seinni um daginn. Nú hefur Keflavík unnið Bikarinn fjórum sinnum tvöfalt og er í sérflokki í þeim málum.

Við viljum þakka Njarðvíkingum fyrir góðan leik og horfum spenntir fram veginn, því framundan er skemmtilegur lokasprettur í INTERSPORT-deildinni og svo sjálf úrslitakeppnin.

Til hamingju KEFLAVÍK!!