Keflavík er Bikarmeistari kvenna 2004 eftir dramatískar lokamínútur gegn KR
Í fyrra tapaði Keflavík niður unnum leik á síðustu mínútunum en í ár snerist dæmið við og Keflavíkurstúlkur unnu leik sem virtist gjörtapaður rúmum þremur mínútum fyrir leikslok. Frábær sigur hjá stúlkunum, þær gáfust aldrei upp, skoruðu 10 síðustu stig leiksins og uppskáru ljúfan sigur á KR, 73-69.
Fyrirliðar liðanna, Erla og Gunnar, vígreif við komuna til Keflavíkur í gær
Þeir sem þekkja Keflavíkurlið kvenna í körfubolta vita hversu vel það getur leikið. Samt er það svo að þrátt fyrir marga góða leikmenn gengur stundum ekkert upp. Svoleiðis leikur var úrslitaleikurinn í Bikarkeppni KKÍ & Lýsingar 2004. Stelpurnar mættu glaðbeittar til leiks, stríðsmálaðar og flottar. En eitthvað hefur spennustigið farið upp yfir hættumörk, því þegar leikurinn hófst var ekkert af áræðni og krafti Keflavíkurliðsins sjáanlegt.
Fyrstu mínúturnar voru skelfilegar og ekkert gekk að skora. Sem betur fer voru KR-stúlkur ekki miklu betri og jafnræði var með liðunum. Lítið var skorað og mikið um mistök. Þegar Svava kom inn á færðist loks smá líf í sóknarleikinn og setti hún m.a. niður tvo þrista. Staðan eftir fyrsta leikhluta var 16-13 fyrir Keflavík.
Annar leikhluti var litlu betri, lítið var skorað og endaði hann 11-18 fyrir KR og var því staðan í hálfleik 31-27 fyrir KR-stúlkum. Leikurinn var ekki áferðafallegur og Erla Þorsteins sótti 3 villur og þurfti því að sitja töluvert á bekknum. KR lék lengst af svæðisvörn og náði þannig að loka á sendingar inn á teiginn til Erlu og Önnu Maríu. Þegar þær breyttu í maður á mann vörn í öðrum leikhluta náði Birna að skora nokkrar góðar körfur inni í teig og Keflavík tók forystuna í leiknum. En gegn svæðisvörninni gekk okkar stúlkum illa, enginn hitti vel að utan, nema Svava. Alls tóku stúlkurnar 19 3ja stiga skot og hittu aðeins úr 4.
Áhorfendur sem ræddu málin í hálfleik áttu von á því að Keflavík myndi ná að hrista af sér slenið í þeim seinni og hrökkva í gírinn. En það var öðru nær. Ekki örlaði enn á þeim krafti sem við höfum svo oft séð og varnarleikurinn fór að dala verulega. KR-stúlkur komist æði oft í opin skot, ekki síst Katie Wolfe, en hún átti stórleik og skoraði alls 30 stig í leiknum. Svo furðulega vildi til að hún fékk mikið að skjóta óáreitt. En doðinn var enn alls ráðandi hjá Keflavík og stundum náði KR ódýrum sóknarfráköstum þar sem Keflavíkurvörnin var sofandi á verðinum.
Og KR tók völdin á vellinum og byggði upp nokkuð öruggt forskot sem varð mest 11 stig, 64-53, þegar um 3 mínútur og 50 sekúndur voru eftir af leiknum. Þá virtust öll sund lokuð. En þá virtist Keflavíkurliðið loks vakna til leiks. Þær fóru markvisst að sækja inn á Erlu Þorsteinsdóttur, sem hafði ekki náð sér á strik fram eftir leik. Erla skoraði nú grimmt og hitti vel úr vítunum. Það sama má segja um nöfnu hennar Reynisdóttur, sem hafði einnig nýtt færin illa.
Leikurinn snerist og KR-liðið fór á taugum. Þær misstu alla áræðni, hittu ekki lengur úr opnum skotum, brenndu af vítum og gáfust upp gegn grimmri Keflavíkurvörn. Í stöðunni 69-63 fyrir KR, setti Erla R niður þrist úr horninu og þá var stemmingin algerlega komin yfir til Keflavíkur. Leikur sem virtist tapaður var nú á réttri leið. Erlurnar kláruðu síðan leikinn með miklu öryggi á vítalínunni. KR liðið var hrunið og þær reyndu að brjóta af sér í lokin og fengu dæmda ásetningsvillu. Það skipti í raun engu því aðeins voru 3 sek eftir og leikurinn búinn. Ótrúlegur viðsnúningur og bikarinn til Keflavíkur.
Þetta var sannkallaður bikarslagur, spennandi fram á síðustu sekúndu. Reyndar var leikur okkar stúlkna afleitur, ef frá eru skildar síðustu 4 mínúturnar, þá loksins sýndu þær áræðni og kjark og það dugði til sigurs. Anna María var jafnbest í liðinu, skoraði 14 stig og tók 15 fráköst og neitaði að gefast upp, hélt áfram að hvetja og drífa stúlkurnar áfram allan tímann. Annars voru flestar stúlkurnar “köflóttar”, ef svo má segja. Erlurnar voru slakar framan af en frábærar í lokin, Svava hélt okkur inni í leiknum þegar ekkert annað gekk upp og Birna átti ágæta spretti. Rannveig og Marín voru ágætar í vörninni en ekki atkvæðamiklar í sókn. Bryndís og María Ben áttu ágætar innkomur.
Nú er bikarinn kominn aftur til Keflavíkur. Frábært stúlkur, frábært að geta unnið þrátt fyrir að ekkert gangi upp, frábær sigurvilji. Til hamingju með það! Þessi bikarmeistaratitill er sá 11. í röðinni frá því 1988. Stórkostlegur árangur.