Fréttir

Körfubolti | 23. febrúar 2004

Keflavík er Deildarmeistari kvenna 2004, annað árið í röð og í 8. sinn á 12 árum - Fjórði titill stúlknanna í vetur!

Keflavík mætti KR í annað skiptið á skömmum tíma um helgina og þegar þær voru lausar við bikarstressið, þá var aldrei spurning um hvort liðið væri betra. Keflavík tók forystuna í upphafi og vann sannfærandi 16 stiga sigur, 73-57. Á sama tíma tapaði ÍS með nýja Kanann óvænt fyrir Grindavík þannig að Keflavík varð Deildarmeistari 2004 og varði þar með titilinn. Þetta er 8. deildarmeistaratitill Keflavíkurkvenna á 12 árum, eða frá því að núverandi keppnisfyrirkomulag var tekið upp. Jafnframt var þetta fjórði titill stúlknanna á yfirstandandi leiktíð, því þær urðu í haust Meistarar meistaranna, síðan Hópbílameistarar í desember, síðan Bikarmeistarar á ótrúlegan hátt og nú deildarmeistari. Aðeins sá stóri er eftir og leika stúlkurnar væntanlega gegn Grindavík í undanúrslitunum sem hefjast væntanlega um miðjan mars.

Rannveig átti stórleik gegn KR og gerði 17 stig, en annars lék liðið yfir höfuð vel og mun betur en í bikarleiknum. Erla og Anna María tóku sín 14 fráköstin hvor. Fjórar stúlkur gerðu meira en 10 stig í leiknum, Rannveig 17, Birna 13, Anna 13 og Erla 11.

Hér má sjá tölur úr leiknum.

Til hamingju með frábæran árangur í deildinni stúlkur!